Bláhver 2021

18 BLÁHVER JÓLABLAÐ 2021 Annáll bæjarstjóra 2021 Einhvern veginn datt manni ekki til hugar að annað árið í röð yrði undirlagt umræðu um smitgát, sóttkví, einangrun og heilbrigðiskerfið. En þetta ár var samt betra en 2020! Lífið ein­ kenndist af gleði, sól og sumri, ekki síst fyrir norðan og austan. Hitatölur og sólarstundir sem hefðu sómt sér vel mun sunnar í álfunni sáust ekki bara dag eftir dag heldur viku eftir viku. En hér í Hveragerði rigndi duglega. Það er gott fyrir gróðurinn segja hinir jákvæðu, við hin vonumst eftir sumri og sólríkum dögum á næsta ári. Við eigum það svo sannarlega inni! Íbúum fjölgar sem aldrei fyrr Hér í Hveragerði fjölgar íbúum stöðugt. Nú er það ekki spurning hvort heldur frekar hvenær íbúatalan nær 3.000. Fjölgað hefur um 200 manns á árinu og er það fáheyrð fjölgun í þétt­ býli á Íslandi eða um 8%. Á næstu misserum mun svo enn fjölga í hópi bæjarbúa því á annað hundrað íbúða eru nú í byggingu og fjöldi ann­ arra eru á teikniborðinu. Það hefur lengi loðað við umræðuna að Hvergerðingum sé þröngt sniðinn stakkur hvað lóðamál varðar og því geti ekki fjölgað hér nema takmarkað. Það er því gott að vita til þess að mjög stór svæði hér innanbæjar eru enn óbyggð og því getum við stolt vitað af því að margfalda má bæjarfélagið sé vilji til þess. Fjölbreytni í atvinnulífinu En á árinu fylgdumst við spennt með uppbyggingu Gróðurhúss­ ins við Breiðumörk. Það hefur nú opnað og óskum við þeim fjölmörgu rekstraaðilum sem þar eru með rekstur velfarnaðar í framtíðinni. Það sama gerum við varðandi alla hina sem veðjað hafa á Hveragerði hvað atvinnuupp­ bygginu varðar en á árinu hefur lóðum verið úthlutað fyrir fyrirtæki sem samtals gætu verið með vel ríflega 100 manns í vinnu. Nú hefur myndast nýr rúntur í bæjarfélaginu en það er gaman að renna upp í Dal og fylgjast með lífinu sem fylgir nýja staðnum sem þar er nú kominn. Hafin er gjaldtaka á bílastæðinu við Árhólma og eftir brösuga byrjun gengur innheimta þar núna ljómandi vel og er sérlega gaman að sjá ríkan greiðsluvilja gesta sem um svæðið fara. Tölvuvæðing grunnskólans Viðbyggingu við grunnskólann miðaði vel á árinu og við upphaf skólastarfs í haust var hægt að hefja kennslu í sex nýjum kennslu­ stofum sem með fallegum hætti tengjast við Lystigarðinn Fossflöt. Í grunnskólanum er nú einnig verið að tölvuvæða skólann í samræmi við tillögu frá starfshópi. Er það vilji bæjar­ stjórnar að skólinn verði eins góður og mögu­ legt er hvað aðbúnað og kennsluhætti varðar. Fjölgun íbúa fylgja nýjar áskoranir og því hafa nú verið teknar í notkun nýjar lausar kennslu­ stofur við Leikskólann Óskaland þar sem tvær deildir elstu barna munu hafa aðsetur. Það gefur möguleika á að taka nú inn allra yngstu börnin í bænum. Búningsklefar í sundlauginni endurnýjaðir Framkvæmdum við endurnýjun búningsklefa í Sundlauginni Laugaskarði er enn ekki lokið og hefur sú framkvæmd reynst nákvæmlega eins erfið og við mátti búast. Ýmislegt hefur komið upp sem skýrir það enda er húsið komið af léttasta skeiði og alls konar hlutir sem þurfti að bregðast við komu upp við endurbæturnar. Aftur á móti þykja búningsklefarnir vel lukkaðir og fallegir sem er ánægjulegt. Íþróttir fyrir alla Heilsuefling eldri borgara í Hamarshöll nýtur mikilla vinsælda en þar bíður bæjarfélagið þessum dýrmæta hópi uppá þjálfun með afar góðum kennara, allt gjaldfrjálst. Meistaraflokkur karla í blaki náði einstökum árangri á árinu en strákarnir unnu alla titla árs­ ins og alla leiki sem þeir spiluðu. Urðu þar með deildar-, bikar-, og Íslandsmeistarar í blaki.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==