Bláhver 2021
6 BLÁHVER JÓLABLAÐ 2021 Njótum fjölbreyttra gönguleiða Einstök náttúra einkennir bæinn okkar. Við mörg hver lærðum í grunnskóla að á Íslandi eru öll stærri bæjarfélög staðsett við sjávar síðuna, nema Hella, Hvolsvöllur, Selfoss, Egils staðir og Hveragerði. Þegar maður veltir fyrir sér sérstöðu þessara staða sér maður strax að Hveragerði sker sig úr verandi það eina sem kúrir í faðmi fjalla. Sú sérstaða veldur því að hér eru dásamlegar og miskrefjandi göngu leiðir þar sem hver og einn ætti að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Búið er að merkja fjölda þeirra og má finna upplýsingar um gönguleiðir á heimasíðu bæjarfélagsins. Full ástæða er til að hvetja okkur öll til að vera dugleg að njóta útivistar á þessum fallegu leiðum. Fræðumst um leið og við göngum Ein gönguleið bæjarins er öllum vel að gengileg en hún leiðir okkur á milli söguskilta í miðbænum þar sem gert er grein fyrir mark verðum stöðum í bæjarfélaginu. Uppsetning söguskiltanna hófst þegar núverandi meirihluti tók við stjórn bæjarins og hefur staðið óslitið síðan. Það er nefnilega mikilvægt að muna að eitt skilti á ári er fljótt að verða að heilmikilli sýningu. Eftir þeirri stefnu hefur verið unnið og nú eru skiltin orðin 14 talsins. Nýtt skilti verður sett upp á komandi vori og leiðir það okkur aðeins lengra en þau sem þegar eru komin upp. Mun það gera grein fyrir þjóðleiðunum , fornu og nýju, sem liggja hér um Hveragerði en þær eru merkileg heimild um sögu fyrri tíma. Í vor munu göngugarpar geta halað niður QR kóða sem vísar á síðu sem leiðir okkur á milli skiltanna og mun það einfalda okkur að finna þau öll. Eyþór H. Ólafsson Formaður bæjarráðs Við sendum Hvergerðingum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir árið sem er að líða. Hátíðarkveðja, Arnon.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==