KYLFINGUR 2022

I KYLFINGUR I 13 Vegna Covid hófst mótaröðin ekki fyrr en í mars og stóð aðeins í 5 vikur en ekki 10 eins og venjan er og tókst bara glimrandi vel. Það var öskrandi spenna í einstakl­ ingskeppninni allt til loka og staðan breyttist hvað eftir annað. Lengi leit út fyrir að Jónas Gunnarsson ætlaði að hafa þetta en svo kom Sigurjón Þ. Sig­ urjónsson inn á 53, besta skori kvölds­ ins, aðra vikuna í röð, og var þá kominn í 1. sætið. Svo fór að lokum að Guð­ mundur Óskar sem lék á 54 og átti fyrir síðustu umferð tveggja pútta forskot á Sigurjón, hafði nauman sigur – einu pútti betri. Til hamingju Guðmundur Óskar. Fyrir lokaumferðina lá það fyrir að lið 4 ynni þetta en staða næstu liða var jöfn og spennandi og sífellt að breytast þar til síðasta liðið lauk leik. Eins og áður sagði lék Sigurjón Þ. á besta skori kvöldsins en það gerði líka Leó Snær Emilsson. Léku þeir báðir á 53 púttum. Leó Snær hlaut klukkutím­ ann í Golfhöllinni. Bestu þakkir til Ecco sem er styrkt­ araðili mótaraðarinnar og ekki síður þakkir til þeirra félaga sem eru með á mótaröðinni og komu færandi hendi með verðlaun þetta árið og má þar nefna Jóhannes Bjarna í Danól sem kom í hverri viku með sætabrauð og lagði svo til tvo vinninga að auki. Öðl­ ingurinn Guðmundur Björnsson í Flot­ un er alltaf traustur og kom Sigurbjörn Hjalta einnig færandi hendi. Ómar Örn framkvæmdastjóri GR fær einnig bestu þakkir fyrir stuðninginn og eflaust fleiri sem ég man ekki eftir í augnablikinu. Einnig fjölmörgu fyrirtækjum sem finnst bara sjálfsagt að styrkja svona félagsskap hjá GR. Má þar nefna Mynd­ form, Hereford, Laugar Spa, Kólus og mörg önnur. Golfhöllin veitti verðlaun fyrir besta skor hverrar viku allar fimm umferðirn­ ar. Takk kærlega fyrir það. Ekki má gleyma að þakka okkar allra besta manni Atla Þór Þorvaldssyni, sem er mín hægri hönd í þessu öllu saman, án hans yrði þetta allt töluvert erfiðara ef ekki óframkvæmanlegt. Að lokum óska ég sigurvegurunum til hamingju með árangurinn. Svo að endingu þakka ég öllum fyrir þátttökuna í vetur og vonandi hafa allir haft einhverja ánægju af. Gangi ykkur vel í golfinu í sumar. Bestu kveðjur, Halldór B. Kristjánsson púttmótaröð karla 2022 Guðmundur Óskar besti púttarinn Lið nr. 4 var öruggur sigurvegari í liðakeppninni endameð tvo af bestu fjórumeinstaklingum innan sinna raða. F.v.: Jónas Gunnarsson, Guðmundur Óskar Hauksson, meistarinn sjálfur, Róbert Arnþórsson og Kristján Ólafsson.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==