KYLFINGUR 2022

16 I KYLFINGUR I Opnun Korpu 2022 Opnunarmót Korpu fór fram 7. maí í frekar svölu veðri. Völlurinn tók vel á móti golfþyrstum kylfingum og kemur Korpan mjög vel undan vetri að sögn kylfinga. Nú hefur Korpan verið formlega opnuð fyrir sumarið. Ræst var út frá 8:30-15:00 í Opnunarmótinu og tóku rúmlega 180 kylfingar þátt. Keppnin var hörð meðal okkar bestu kylfinga, þeir Arnór Ingi Finnbjörnsson og Böðvar Bragi Pálsson komu báðir inn á 65 höggum eða 7 undir pari vallarins. Böðvar Bragi var með betra skor á seinni 9 og vinnur því besta skor dagsins. Úrslit í Opnunarmóti Korpu 2022 urðu þessi: Forgjöf 0-14 1. sæti: Arnór Ingi Finnbjörnsson 41 punktar 2. sæti: Helga Friðriksdóttir 40 punktar 3. sæti: Elvar Már Kristinsson 39 punktar (betri seinni 9) Forgjöf 14,1 og hærra 1. sæti: Margrét Jóna Eysteinsdóttir 47 punktar 2. sæti: Jón Eysteinsson 43 punktar 3. sæti: Júlíus Geir Guðmundsson 39 punktar Nándarverðlaun: 3. braut: Sigurbjörn Jakobsson 1,54 m 6. braut: Karl Olsen 23 cm 9. braut: Arnór Ingi Finnbjörnsson 1,41 m 13. braut: Jóhann Þorkelsson 98 cm 17. braut: Þorvarður Björgvinsson 2,47 m Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna í dag og ósk­ um vinningshöfum til hamingju með árangurinn. Hvernig var þetta nú aftur?

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==