KYLFINGUR 2022

20 I KYLFINGUR I Vormót GR kvenna var haldið í Borgarnesi sunnudag­ inn 22. maí. Mótið var virkilega skemmtilegt og vel heppnað. Vormótið markar upphaf að sumarstarfi GR kvenna og voru 60 konur skráðar til leiks. Eftir mótið snæddum við á Icelandair Hótel Hamar og fengum kaffi og konfekt á eftir. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin auk nánd­ arverðlauna á öllum par 3 brautum. Einnig var dregið úr skorkortum. Spilað var Greensome þar sem tvær léku saman í liði með hámarksforgjöf 32. Liðsforgjöf var fengin með því að reikna 60% af forgjöf þeirra sem var með lægri forgjöf og 40% af þeirri sem hafði hærri. Úrslitin voru eftirfarandi: 1. sæti Vilborg Linda Indriðadóttir og Jakobína H. Guðmundsdóttir á 73 höggum (betri seinni 9) 2. sæti Guðrún Óskarsdóttir og Ljósbrá Baldursdóttir á 73 höggum 3. sæti Linda Hrönn Ragnarsdóttir og Helga Ragn­ heiður Jónsdóttir á 74 höggum Næstar holur: 2. braut – Vilborg Linda Indriðadóttir 6. braut – Kristín Þórdís Ragnarsdóttir 8. braut – Halldóra Jóhannsdóttir 12. braut – Vilborg Linda Indriðadóttir 18. braut – Laufey Valgerður Oddsdóttir Við óskum verðlaunahöfum innilega til hamingju. Fjölmörg fyrirtæki gáfu verðlaun og teiggjafir og þökkum við kærlega fyrir það. Helst má nefna Icelandair, Bioeffect, Advania, Nói Siríus, Innes, Noz heildverslun, Verslunin Lúr og margir fleiri. KVENNASTARF GR Sigurvegarar á Vormóti GR.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==