KYLFINGUR 2022

I KYLFINGUR I 29 Gísli Guðni Hall var kjörinn formaður Golfklúbbs Reykjavíkur á aðalfundi félagsins 2021. Kylfingur kynnir formanninn og kylfinginn fyrir lesendum sínum og fer hér á eftir ítarlegt viðtal við hann. Gísli Guðni Hall Fjölskylduhagir? Kvæntur Lindu Katrínu Urbancic. Við búum í Grafarholtinu, nálægt 6. teig. Við erum barnlaus en eigum tvo hunda. Grafarholtið er hin fullkomna staðsetning fyrir golfarann og hundana. Starf? Ég starfa sem lögmaður hjá Mörkinni lögmannsstofu. Gestur Jónsson lögmaður, réði mig á árinu 1997 og ég hef verið þar síðan með honum og fleirum góðum. Tiltölulega skömmu eftir ráðningu mína varð Gestur formaður GR. Eins og þeir sem þekkja Gest vita að hann smitar út frá sér og það var óhjákvæmilegt að ég fengi áhuga á málum GR með hann við hliðina á mér. Þetta sama ár, 1997, skipti ég yfir i GR. Hvernig kom það til að þú byrjaðir í golfi? Ég var 12–13 ára þegar við nokkrir félagar á Seltjarnarnesinu fórum að fikta við þetta og fengum eiginlega strax mikinn áhuga. Það myndaðist góður hópur af krökkum þarna, allt strákar reyndar ef ég er hreinskilinn. Margir okkar eru enn í golfi og fátt skemmilegra en að lenda í holli með einhverjum þeirra. Við reynum að halda eitt mót á ári, eins konar re­ union, sem heitir Top Flite Open, til minningar um þá góðu en hörðu bolta. Rétt eins og í dag var Hörður Traustason með veitingarnar í skálanum. Maður kynntist ótrúlega mörgum golfurum þarna í klúbbnum, og margir eftirminni­ legir karakterar. Okkur strákunum var vel tekið og ekkert vesen.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==