KYLFINGUR 2022
I KYLFINGUR I 37 GR-ingurinn Haraldur Franklín Magnús náði frábærum árangri þegar hann endaði í 2. sæti á atvinnumóti sem lauk í Jóhann esarborg í Suður-Afríku í janúar sl. Haraldur Franklín lék hring ina þrjá á 203 höggum eða 13 höggum undir pari (67-67-69) og var aðeins einu höggi á eftir sigurvegaranum Ricky Hendler frá Suður-Afríku. Mótið fór fram á Modderfontein vellinum og er hluti af IGT mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröðin í Suður- Afríku. Hin þekkta Sunshine-mótaröð er sú sterkasta í Suður Afríku en sú mótaröð hefur alið af sér fjölmarga atvinnukylfinga sem hafa náð langt á heimsvísu. Haraldur Franklín í 2. sæti í Suður Afríku Leirumótið hjá Golfklúbbi Suðurnesja fór fram fyrstu helgina í júní en mótið er annað í röðinni á tímabilinu á GSÍ mótaröðinni. Keppt var í höggleik í kvenna- og karlaflokki og voru 54 holur leiknar á þremur dögum. Golfklúbbur Suðurnesja sá um framkvæmd móts ins. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Hákon Örn Magnússon, bæði úr GR, stóðu uppi sem sigurvegarar mótsins. Loka dagurinn var mjög spennandi þar sem úrslit réðust á lokaholunum og var mjótt á munum. Hákon Örn lék á samtals spilaði 206 höggum eða 10 höggum undir pari. Hann spilaði hringina þrjá á 71-69-66 höggum. Í öðru sæti í karlaflokki varð Daníel Ísak Steinarsson úr GK á samtals 208 höggum og í þriðja sæti hafnaði Aron Emil Gunnarsson úr GOS á samtals 213 höggum. Gríðarleg spenna var í kvennaflokki en Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir sigraði með minnsta mun á samtals 227 högg um (76-77-74) eða 11 höggum yfir pari. Ragnhildur Kristinsdóttir fylgdi Jóhönnu fast á eftir og endaði í öðru sæti aðeins einu höggi á eftir Jóhönnu Leu á samtals 228 höggum (80-76-72). Anna Júlía Ólafsdóttir úr GKG varð þriðja í kvennaflokki á samtals 231 höggi (77-78-76). Verðlaunahafar fengu í verðlaun: 1. sæti var gjafabréf frá Courtyard by Marriott Hotel og golfhringir hjá GS. 2. sæti var gjafabréf frá Lighthouse Inn, gjafabréf frá ECCO og golfhringir frá GS. 3. sæti var gjafabréf frá 4×4 Adventures Iceland og golfhringir frá GS. Lokastaðan í karlaflokki: Hákon Örn Magnússon GR: 206 högg (71-69-66) -10 Daníel Ísak Steinarsson GR: 208 högg (70-66-72) -8 Aron Emil Gunnarsson GOS: 213 högg (70-72-71) -3 Lokastaðan í kvennaflokki: Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir GR: 227 högg (76-77-74) +11 Ragnhildur Kristinsdóttir GR: 228 högg (80-76-72) +12 Anna Júlía Ólafsdóttir: 231 högg (77-78-76) +15 Við óskum okkar frábæru kylfingum innilega til hamingju með árangur helgarinnar! Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Hákon Örn Magnússon sigurvegarar Leirumótsins
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==