KYLFINGUR 2022
Mikið var í gangi hjá barna- og unglingastarfi GR þetta árið. Í byrjun apríl var farið í langþráða æfingaferð til Morgado í Portúgal þar sem tæplega 50 börn og foreldrar/aðstand endur æfðu og spiluðu í fullkomnum aðstæðum. Var mikil ánægja með þá ferð og ljóst á frammistöðu allra að æfingar vetursins höfðu mikil og góð áhrif. Margir sem lækkuðu for gjafir sínar umtalsvert og höfðu tekið leik sinn á næsta stig. Golfklúbbur Reykjavíkur, í samstarfi við Rannís, byrjaði með átakið Góðar í Golfi, en markmið þess var að fá fleiri ungar stelpur í golf. Boðið var upp á prufuæfingar fyrir stelpur á aldrinum 6 til 12 ára undir handleiðslu PGA kennara og afrekskylfinga GR. Átakið tókst mjög vel til og þónokkrar stelpur ákváðu að taka næsta skref og prófa almennar æfingar hjá golfklúbbnum. Golffjör GR gekk vel líkt og fyrri ár. Yfir 200 börn mættu og mátti sjá verðandi golfstjörnur í hverjum bás. Lögð er mikil áhersla á að þátttakendur læri undirstöðuatriðin í öllum þáttum leiksins og hafi gaman af í leiðinni. Aldrei séu fleiri en átta nemendur á hvern leiðbeinanda til að tryggja ákveðin gæði. Berglind Björnsdóttir fór fyrir flottum hópi leiðbeinenda sem hlúðu vel að krökkunum og fá hrós skilið. Golfskóli Golfklúbbs Reykjavíkur er mjög mikilvægur til að kynna íþróttina fyrir börnum og vonandi fá nýja meðlimi í barna- og unglingastarfið. Æfingadagskrá barna- og unglingastarfsins var stækkuð og fleiri æfingar í boði fyrir iðkendur. Framboð á opnum æf ingum var aukið auk þess að tvær nýjungar voru kynntar; GR stelpuæfingar þar sem stelpur í barna- og unglingasarfinu þvert á aldur og getu gátu komið saman á æfingu og Fjölskylduæfing en þar gátu foreldrar og/eða aðrir aðstand endur mætt með barni/börnum sínum, æft saman og átt skemmtilega fjölskyldustund. Ennfremur var stofnaður nýr æfingahópur, Y hópur, en hann var skipaður iðkendum að mestu leyti undir 14 ára aldri sem hafa verið að keppa á GSÍ unglingamótaröðinni og/eða Áskorendamótaröðinni. Iðkendur þessa hóps þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði til að geta verið meðlimur í þessum hópi. Fyrir var X hópur en hann var fyrir mun breið ari aldurshóp eða 18 ára og yngri. Ákveðið var að skipta hópnum í tvo hópa; Y hóp (14 ára og yngri) og X hóp (15 til 18 ára) til að geta veitt meðlimum hópanna betri kennslu og æfingar sem hentuðu betur þeim aldurshópum og getu. Þjálfarar barna- og unglingastarfsins, David Barnwell, Berglind Björnsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Arnór Tjörvi Þórsson stóðu sig frábærlega eins og vanalega. Iðkendur og aðstandendur þeirra eru mjög ánægðir með það þjálfarateymi sem GR hefur upp á að bjóða. Icelandair Cargo mótaröðin hélt áfram göngu sinni. Aldrei hefur verið jafn góð þátttaka og þetta ár. Glæsilegt tilþrif sáust í hvítvetna og hart barist í öllum flokkum. Grafarkotsmótaröðin var aftur í boði fyrir þá yngri og óreyndari. Góð þátttaka var í mótaröðina sem var haldin á Grafarkotsvelli í allt sumar. Augljóst að mótaröðin er komin til að vera. GR sendi stráka- og stelpusveitir á Íslandsmót klúbba unglinga í öllum aldursflokkum. Allar sveitir stóðu sig með prýði. Margir kylfingar voru að taka sín fyrstu skrefi í liða keppni. Þjálfarar, liðsstjórar og sjálfboðaliðar stóðu sig með eindæmum og fá allir miklar þakkir fyrir óeigingjarnt starf við að gera upplifun barnanna eins góða og raun bar vitni. Vetraræfingar eru komnar á fullt og er mikill metnaður í framtíðarkylfingum okkar að bæta sig enn frekar fyrir næsta golftímabil. Framtíðin er björt og spennandi tímar framundan! Kv. Þórður Rafn Gissurarson Íþróttastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur Barna- og unglingastarf GR 46 I KYLFINGUR I
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==