KYLFINGUR 2022

I KYLFINGUR I 49 Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar stóðu uppi sem sigur­ vegarar í Hvaleyrarbikarnum sem keppt var um hjá Golfklúbbnum Keili dagana 14.–16. júlí, mótið er hluti af stigamótaröð GSÍ. Ragnhildur lék á samtals 211 höggum eða 2 höggum undir pari (68-69-74) og sigraði með 16 högga mun. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir úr GR varð í öðru sæti á samtals 227 höggum og í þriðja sæti var Anna Júlía Ólafsdóttir úr GKG á samtals 231 höggum. Í karlaflokki sigraði Guðmundur Á. Kristjánsson úr GKG, hann lék á samtals 200 höggum og sigraði á samtals -13. Jafnir í 2.–3. sæti á samtals 207 höggum urðu þeir Axel Bóasson og Rúnar Arnórsson, báðir úr Golfklúbbnum Keili. Við óskum vinningshöfum Hvaleyrarbikarsins árið 2022 innilega til hamingju með sigurinn! Ragnhildur Kristinsdóttir og Guðmundur Ágúst Kristjánsson sigruðu Hvaleyrarbikarinn 2022 Íslandsmót eldri kylfinga 2022 fór fram á Akureyri dagana 14.–16. júlí. Mikill áhugi var á mótinu og keppt var í fjórum flokkum. Jón Karlsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði Íslands­ meistaratitilinn í flokki 50 ára og eldri en hann lék á samtals 220 höggum. Jafnir í 2.–3. sæti á samtals 224 höggum voru þeir Ólafur Jóhannesson úr GSE og Helgi Eiríksson úr GE. Við óskum Jóni innilega til hamingju með Íslands­ meistaratitilinn og öðrum keppendum til hamingju með sinn árangur. Íslandsmót eldri kylfinga Jón Karlsson GR Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==