KYLFINGUR 2022
52 I KYLFINGUR I Perla Sól Sigurbrandsdóttir , GR, gerði sér lítið fyrir og sigr aði á Evrópumeistaramóti 16 ára og yngri, European Young Masters, sem fram fór í Finnlandi. Perla tryggði sér sigurinn á 18. holu þegar hún setti niður pútt til að tryggja sigurinn – en hún sigraði með minnsta mun og átti eitt högg fyrir lokaholuna. Sigur Perlu er sögulegur þar sem þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur kvenkylfingur sigrar á þessu móti. Yfir 70 kepp endur á mótinu voru með 0 eða lægri forgjöf. Lægsta for gjöfin var -5 og 30 keppendur voru með -3 eða lægra í forgjöf á þessu móti. Ómar Halldórsson, GA, fagnaði sigri á Evrópumeistaramóti unglinga árið 1997 og hafa því íslenskir kylfingar sigrað í báðum flokkum mótsins. Perla Sól, sem er fædd árið 2006, verður 16 ára í haust. Hún lék hringina þrjá á 2 höggum undir pari Linna vallarins þar sem mótið fór fram. Hún lék samtals á 214 höggum (72- 72-70). Þrír keppendur voru jafnir á -1 samtals. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi 2022, var valin í úrvalslið meginlands Evrópu sem keppir gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands í Junior Vagliano liðakeppninni 2022. Mótið er árlegur viðburður þar sem að úrvalslið kvenna 16 ára og yngri keppir sín á milli – og eru aðeins kylfingar í fremstu röð á heimsvísu valdir í þetta mót. Valnefnd á vegum EGA setti saman liðið – sem er þannig skipað: Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Johanna Axel sen (Danmörk), Anna Cañadó (Spánn), Andrea Revuelta (Spánn), Carla De Troia (Frakkland). Sigurvegarinn úr R&A áhugamannamótinu í stúlknaflokki fær einnig sæti í liðinu en mótið hófst í dag. Þeir keppendur sem nú þegar eru í liðinu hafa aldrei áður keppt á þessu móti. Mótið fer fram dagana 26.–27. ágúst á Blairgowrie golfvellinum í Skotlandi Við óskum Perlu góðs gengis á mótinu og hlökkum til að fylgjast með henni! Sjá aftar í blaðinu. Perla Sól Evrópumeistari – sigraði á European Young Masters PERLA SÓL VALIN Í ÚRVALSLIÐ EVRÓPU
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==