KYLFINGUR 2022

Í slandsmótinu í golfi 2022 lauk í Vestmannaeyjum 7. ágúst en mótið hófst fimmtudaginn 4. ágúst. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og Kristján Þór Einarsson, GM eru Íslandsmeistarar í golfi 2022. Þetta er í fyrsta sinn sem hin 15 ára Perla Sól fagnar þessum titli og í annað sinn sem Kristján Þór sigrar á Íslandsmótinu – en hann sigraði árið 2008 þegar mótið fór einnig fram í Vestmannaeyjum. Kristján Þór fékk einnig Björgvins­ skálina sem er veitt þeim áhugakylfingi sem leikur á lægsta skorinu í Íslands­ mótinu ár hvert. Þetta er í annað sinn sem þessi viðurkenning er veitt. Þetta er í þriðja sinn sem kylfingur úr GM verður Íslandsmeistari, en Heiðar Davíð Bragason, braut ísinn árið 2006. Perla Sól er fædd árið 2006 og er hún næst yngsti kylfingurinn sem fagn­ ar Íslandsmeistaratitli í kvennaflokki. Perla Sól verður 16 ára í september en Ragnhildur Sigurðardóttir var nýorðin 15 ára þegar hún varð Íslandsmeistari á Jaðarsvelli á Akureyri árið 1985. Þetta er í 23. sinn sem GR-ingur fagnar Ís­ landsmeistaratitli í kvennaflokki. Karen Sævarsdóttir, GS, var 16 ára gömul þegar hún sigraði í fyrsta sinn á Íslandsmótinu í golfi árið 1989. Hún varði titilinn næstu sjö árin, sem er met sem verður seint slegið. Mótsstjórn tók þá ákvörðun síðdegis að fella niður lokaumferðina þar sem Vestmannaeyjavöllur var ekki leikfær vegna úrkomu. Gert var hlé á keppni vegna veðurs en gríðarleg úrkoma setti keppnishaldið úr skorðum og tekin var sú ákvörðun að fella niður lokaum­ ferðina. Lokastaðan í kvennaflokki 1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR 209 högg (70-70-69) (-1) 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 210 högg (74-69-67) (par) 3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 219 högg (76-71-72) (+9) 4. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 221 högg (73-75-73) (+11) 5.-6. Saga Traustadóttir, GKG 222 högg (78-76-68) (+12) 5.-6. Berglind Björnsdóttir, GR 146 högg (75-71-76) (+12) Lokastaðan í karlaflokki: 1. Kristján Þór Einarsson, GM 204 högg (70-70-64) (-6) 2.-3. Sigurður Bjarki Blumenstein, GR 206 högg (75-69-62) (-4) 2.-3. Kristófer Orri Þórðarson, GKG, 206 högg (66-71-69) (-4) 4.-6. Kristófer Karl Karlsson, GM 207 högg (72-69-66) (-3) 4.-6. Böðvar Bragi Pálsson, GR 207 högg (68-69-70) (-3) 4.-6. Birgir Guðjónsson, GE 207 högg (71-64-72) (-3 Perla Sól Sigurbrandsdóttir fór upp um 39 sæti á heimslista áhugakylfinga í kvenna­ flokki þegar listinn var uppfærður í dag. Perla Sól tryggði sér um s.l. helgi Íslands­ meistaratitilinn í golfi og í lok júlí fagnaði hún Evrópumeistaratitlinum í flokki stúlkna 16 ára og yngri. Hún er í sæti nr. 255 og er það besti árangur hennar á listanum frá upphafi. Hún er með bestan árangur þessa stundina hjá íslenskum áhugakylfingum á heimslistanum. Á þessu ári hefur hin 15 ára gamli kylfingur úr GR farið upp um rúmlega 1340 sæti á heimslistanum Hún var í sæti nr. 769 í apríl á þessu ári og í sæti nr. 1633 í byrjun ársins. Með þessu risastökki á heimslistanum á þessu ári hafa opnast nýir möguleikar fyrir Perlu Sól hvað varðar þátttöku á sterkum áhugamannamótum. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, er í sæti nr. 329, Sara Kristinsdóttir, GM er í sæti nr. 663 og Hulda Clara Gestsdóttir, GKG og Íslandsmeistari í golfi 2021, er í sæti nr. 770. Saga Traustadóttir, GKG, fer upp um tæplega 500 sæti í þessari viku en hún var í sæti nr. 1011 en er í 483. sæti núna. Perla Sól hefur farið upp um rúmlega 1340 sæti á heims­ lista áhugakylfinga á þessu ári – nálgast topp 200 I KYLFINGUR I 55

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==