KYLFINGUR 2022
58 I KYLFINGUR I Stórkylfingarnir og skötuhjúin Hörður Sigurðsson og Lauf ey Valgerður Oddsdóttir flugu til vetrardvalar á Spáni fyrir ári síðan og ákváðu að gera það aftur nú í ár en með öðru sniði. Ákváðu að fara akandi til Spánar á sínum eðaljeppa og komu víða við. Hér á eftir fylgir fróðleg ferðasaga þeirra. Það er ekki á hverjum degi sem ákveðið er að keyra frá Íslandi til Spánar. Við Laufey vildum losna við að leigja bíl og taka frekar okkar eðal-jeppa með og einnig gátum við þá tekið með meiri búnað til vetrardvalarinnar. Var lagt af stað frá Reykjavík til Seyðisfjarðar þar sem Norræna beið okkar og lagt af stað þaðan 21. september. Veður var stillt allan tímann á sjó og enginn sjóveiki. Var stōðvað í Færeyjum í 4 tíma en komið til Hirtshals í Danmōrku þann 24. september. Ókum þaðan til Esbjerg og dvōldum í tvo daga hjá skyldfólki. Hún byrjaði ekki vel ferðin suður Európu þar sem mér tókst að fá flensu á fyrsta degi og því ekki lagt af stað fyrr en sennipart dags þann 27. Við komumst út á hraðbrautina en náðum ekki að aka langt, umferðin stōðvaðist vegna slyss og allt stopp vel yfir tvo tíma. Þegar losaðist um loksins var ákveðið gista í Rødding á bóndabæ þar og við því ekki enn komin frá Danmōrku. Frúin slapp heldur ekki við flensuna en var orðin ferðafær daginn eftir. Þar sem fremur kalt var í Þýskalandi var ekið vel næsta dag og alla leið til bæjar sem heitir Gōttingen. Gistum á Hótel Beckman. Við vorum búinn að ákveða að gista aðeins á minni stōðum, forðast stórborgir og kanna gistingar sam dægurs sem gekk vel alla ferðina og verðlag frábært, 60-95 evrur nóttin. Frá Gōttingen ókum við til Naustadt, rúmlega fjögurra tíma leið en þar ætluðum við að kaupa okkur nýjar rafmagnskerrur af fyrirtæki sem heitir Trendgolf. Hittum þar fyrir starfsmann að nafni Markus sem vildi allt fyrir okkur gera, sagði okkur fyrstu kúnnana sem kæmu til hans frá Íslandi. Varð úr að við keyptum tvær rafmagnskerrur og vildi Markus endilega fá mynd af okkur sem hann setti svo á Facebook. Daginn eftir var ekið stutta leið í þorp sem heitir Rothen burg ob der Tauber. Þetta er miðaldaþorp og mikið sótt af ferðamōnnum, íbúar um 10.900 og þorpið girt af með háum múrum. Við ókum í gegnum hlið til að komast þar inn. Gist Ekið til Spánar Markus hjá Trendgolf í Þýskalandi seldi okkur rafmagnskerrur og sagði okkur fyrstu viðskiptavini frá Íslandi sem komið hefðu til hans og af því tilefni vildi hann fá mynd af okkur sem hann setti svo inná Facebook.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==