KYLFINGUR 2022
60 I KYLFINGUR I Kirkjan fræga í Barcelona, hōnnuð af Antoni Gaudí, frægasta arkitekts Spánar, 170 metra há, stórkostlegt mannvirki. Náðum ekki að skoða að innan, bíður betri tíma. Hurðin að hótelinu í Girona. Hvað skyldi hún vera gōmul? um hjá eldri kínverskum hjónum í gōmlu en snyrtilegu húsi. Ráðlegg ōllum sem aka um Þýskaland að skoða þennan stað, gōturnar lagðar litlum steinum og allar byggingar gamlar en vel við haldið. Frá Rothenburg var ekið til Austurríkis, gegnum Alpana með ægifögru útsýni til allra átta, gegnum Innsbruck og að stað sem heitir Sarnonico á ítalíu. Fórum að kanna með gististað á Booking og fundum einn í 10 km fjarlægð. Var ákveðið að fara þangað, vegurinn þangað reynist hlykkjóttur í meira lagi og allur uppávið, enduðum í yfir 1200 metra hæð uppi á fjalli. Tôldum við okkur vera að villast allsvakalega en þegar upp var komið sáum við eldgamlan bóndabæ og þar fyrir utan háaldraða konu. Sýndi ég henni nafnið á gisti staðnum og benti hún okkur á að aka aðeins lengra. Komum við þá að ægifōgru stóru hóteli, allt til alls þar nema ekkert netsamband, herbergið stórt, stofa og stórar svalir. Fyrir utan hótelið voru svo kýr á beit með bjōllur um hálsinn. Voru gestir þarna flestir útivistarfólk og ætluðu greinilega að ganga á fjōllin i kring. Nú var ekið sem leið lá að og meðfram hinu fagra Garda vatni en hættum við að gista þar; allt miklu dýrara. Vatnið er stórt, allt snyrtilegt og gaman að aka þar um þó svo að í huga mínum átti allt umhverfið að vera þakið meiri blómum og skreytingum. Við vorum ákveðin í að fara til Feneyja og gistum skammt þaðan frá, á stað sem heitir Mira Taglio. Daginn eftir var ekið yfir stóru brúna til Feneyja og þar dvalið daglangt, farið á gondóla, Markúsartorgið og fleira, virkilega skemmtilegt að skoða. Frá Feneyjum var ekið að stað sem heitir Finale ligure og við skelltum okkur þar á strōndina i smá afslōppun. Ókum síðan í bæ sem heitir Bordighera og gistum þar á hótelinu Lucciola, ekta ítalskur bær. Daginn eftir var ekið meðfram Frakklandi, Monaco, Nice og alla leið til bæjar sem heitir Girona á norður Spáni, enda ætlunin að skoða La Sagrada Família kirkjuna í Barcelona daginn eftir. Í Gírona fundum við gistingu í miðbænum en gátum ekki ekið að hótelinu og urðum að leggja um 500 metrum frá. Mig langaði að hætta við en frú Laufey, sem öllu ræður, var á öðru máli. Sáum ekki eftir því. Þetta hótel, Pensio Bellmirall, var ótrúlega fallegt, eldgamalt hús hlaðið fallegum steinum og umlukið gōngugōtum. Hótelstjórinn benti okkur á góðan veitingastað neðar í götunni sem kom svo í ljós að var í hans eigu og þar fengum við eina þá allra bestu nautasteik með piparsósu og meðlæti. Virkilega fallegur bær og margt að sjá. Í Barcelona gekk furðuvel að fá bílastæði rétt hjá kirkjunni frægu, þarna koma um tvær milljónir ferðamanna á hverju ári enda kirkjan algert listaverk og hefur verið í byggingu í 140 ár og er enn ekki lokið. Við dvōldum daglangt í Barcelona en ókum svo til Denia og gistum þar á hótel Denia. Þar hafa margir Íslendingar gist enda fallegur strandbær. Daginn eftir ekið „heim“ til Campoamor sunnan Torrevieja og þar munum við dvelja fram á vor við golfleik í sól og sumaryl. Þetta ferðalag var ógleymanlegt, ókum 4300 km og enginn dagur eins, en allir skemmtilegir.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==