KYLFINGUR 2022
62 I KYLFINGUR I Lið GR Íslandsmeistarar í LEK-móti golfklúbba 65 ára og eldri LEK mót golfklúbba 65+ fyrsta deild karla var leikin við erfiðar aðstæður í Önd verðarnesi í síðustu viku. Mótinu lauk á miðvikudag og stóð sveit GR uppi sem sigurvegarar í mótinu, í öðru sæti varð Nesklúbburinn og Keilir í þriðja. Mótið verður aftur haldið hjá Golfklúbbi Öndverðarness að ári liðnu. Framkvæmd mótsins í ár var öll til fyrirmyndar hjá klúbbnum og eiga starfsmenn skilið hrós fyrir vel unnin störf og gott utanumhald. Við óskum okkar frábæru kylfingum innilega til hamingju með sigurinn í 1. deild karla. Firnasterkt lið GR, fv.: Hannes Eyvindsson þrefaldur Íslandsmeistari frá 1978–80, Ragnar Ólafsson Íslands meistari 1981, Hans Óskar Isebarn margfaldur unglingameistari, Sæmundur Pálsson stórkylfingur, Sigurjón Árni Ólafsson liðstjóri og leikmaður, Kolbeinn Kristinsson, Friðgeir Óli Sverrir Guðnason, Jón Haukur Guðlaugs son og Hörður Sigurðsson, allir með marga sigra að baki í gegnum tíðina. Sveit GR, fv.: Júlíana Guðmundsdóttir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Steinunn Sæ mundsdóttir, Sigríður Kristinsdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Helga Friðriksdóttir, Signý Marta Böðvarsdóttir, Þuríður Valdimarsdóttir og Guðrún Garðars. Íslandsmót golfklúbba 2022 í kvennaflokki 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru 18.–20. ágúst. Í 1. deild kvenna tóku alls 8 lið þátt. Keppt var í tveimur riðlum og leikin ein umferð í riðlinum. Tvö efstu liðin komust í undanúrslit þar sem efsta liðið í A-riðli lék gegn liðinu í 2. sæti í B-riðli. Efsta liðið úr B-riðli lék gegn liðinu í 2. sæti í A-riðli. Liðin sem komust ekki í undanúrslit léku um sæti 5.-8. og neðsta liðið féll í 2. deild. Einn fjórmenningsleikur og fjórir tvímenn- ingsleikir fóru fram í hverri umferð. Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði Golfklúbbinn Keili í úrslitaleiknum. Golfklúbburinn Leynir endaði í þriðja sæti eftir sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í leiknum um þriðja sætið. Golfklúbbur Vestmannaeyja féll úr efstu deild. Íslandsmót golfklúbba 2022 – 1. deild kvenna +50 Golfklúbbur Reykjavíkur sigraði
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==