KYLFINGUR 2022

I KYLFINGUR I 71 Perla Sól Sigurbrandsdóttir , GR, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi 2022, fagnaði sigri með úrvalsliði Evrópu sem keppti gegn úrvalsliði Bretlands og Írlands í Junior Vagliano liða­ keppninni 2022. Úrvalslið Evrópu fékk 10 vinninga gegn 8 vinningum úr­ valsliðs Bretlands og Írlands. Mótið er árlegur viðburður þar sem úrvalslið kvenna 16 ára og yngri keppir sín á milli – og eru aðeins kylfingar í fremstu röð á heimsvísu valdir í þetta mót. Perla Sól sigraði nýverið á Evrópumóti stúlkna 16 ára og yngri – og er hún fyrsti íslenski kylfingurinn sem nær þeim árangri í stúlknaflokki. Valnefnd á vegum EGA setti saman liðið – sem er þannig skipað: Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Johanna Axelsen (Dan­ mörk), Anna Cañadó (Spánn), Andrea Revuelta (Spánn), Carla De Troia (Frakkland) og Lynn Van Der Sljuijs (Holland) semsigraði nýverið á R&A áhugamannamótinu í stúlknaflokki fékk einnig sæti í liðinu eftir sigurinn. Perla Sól tapaði fyrsta fjórmenningsleiknum í fyrstu um­ ferð á föstudeginum þar sem hún lék með Johanna Axelsen. Perla Sól náði 1/2 stig í tvímenningsleiknum eftir hádegi á föstudeginum. Þær Perla og Johanna léku saman á ný í 2. umferð í fjór­ menningsleiknum fyrir hádegi á laugardag – þar sem þær skiluðu 2/1 sigri. Perla Sól tapaði 4/2 í tvímenningsleiknum eftir hádegi á laugardag. Glæsilegur árangur hjá stelpunum og óskum við þeim innilega til hamingju! Perla Sól fagnaði sigri í Junior Vagliano liðakeppninni með úrvalsliði Evrópu BOLTAFÖR Á FLÖTUM Boltaför hafa verið áberandi á flötum félagsins í sumar og viljum við ítreka það við félagsmenn og kylfinga sem leika á völlum félagsins að lagfæra eftir sig boltaför sem myndast á flötum. Það er aldrei of oft minnst á það að ganga vel um vellina okkar og að við vinnum saman að því að gera góða velli enn betri.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==