KYLFINGUR 2022
I KYLFINGUR I 73 GR og Reykjavíkurborg hafa undirritað samning, sem gerir GR kleift að byggja íþróttahús – inniæfingaaðstöðu – sem verður tengd Básum. Samningurinn gerir langt með að tryggja fjármögnun þessarar byggingar ásamt annarri fyrir hugaðri uppbyggingu. Meginatriði samkomulagsins eru þessi: Lóð við Krókháls hefur verið deiliskipu lögð með byggingarrétti og er í sölu ferli. Lóð vinstra megin við 2. braut á Korpúlfsstöðum (Sjónum) verður skipulögð fyrir íbúðabyggð og byggingarréttur seldur. Hluti andvirðis rennur til GR til upp byggingar. Deiliskipulagning téðra lóða, sem er innan svæðis GR samkvæmt lóðar leigusamningum, er ekki með öllu sársaukalaus fyrir GR. Útisvæði Bása þarf að aðlaga, með tilliti til lóðarinnar við Krókháls. Þá mun þurfa að breyta hönnun 2. brautar á Korpúlfsstaðavelli (Sjónum), en það er mat stjórnar GR að möguleikar séu á að gera brautina enn betri en hún er í dag. Á móti kem ur að fjármögnun nauðsynlegra fjár festinga hefur verið tryggð og fram kvæmdir gerðarmögulegar á skömmum tíma, án þess að það sligi fjárhag klúbbsins. Þessi samningur er stór áfangi hjá GR. Nú verður kappkostað við að ljúka hönnun íþróttahússins og nýrrar véla geymslu, þar sem markmiðin eru að gera aðstöðuna sem allra besta, jafn framt því sem leitast verður við að byggja á sem hagkvæmastan máta. Kappkostað verður við að upplýsa félagsmenn um framvindu þessara mála. Samningur GR og Reykjavíkurborgar Perla Sól stigameistari í flokki 15–16 ára Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur bætti enn einni skrautfjöðrinni við í sinn hatt er hún varð stiga meistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ í flokki 15–16 ára. Önnur á stigalista varð Fjóla Margrét Viðarsdóttir úr Golf klúbbi Suðurnesja og Auður Bergrún Snorradóttir úr Golf klúbbi Mosfellsbæjar sú þriðja. Perla Sól tók þátt á fjórummótum af alls fimm og sigraði hún í öll fjögur skiptin. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik og er þetta fimmta árið í röð sem Perla Sól sigrar á Íslands mótinu í höggleik í sínum aldursflokki. Við óskum Perlu Sól innilega til hamingju með stiga meistaratitilinn! Mynd /seth@golf.is
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==