KYLFINGUR 2022

I KYLFINGUR I 75 Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, og einn sterkasti kylfingur okkar Íslendinga síðustu ár, er hætt í golfi. Hún tilkynnti tíðindin í ágúst sl. Ólafía, sem er 29 ára gömul, hefur verið atvinnukylfingur síðustu átta ár og stundað íþróttina í tvo áratugi. Hún hefur spilað á stærstu mótaröð heims, LPGA, mótaröðinni og öllum stærstu kvennamótum heims. Ólafía eignaðist sitt fyrsta barn á síðasta ári, soninn Maron Atlas, og var frá golfvellinum í 20 mánuði. „Ég er metnaðarfull, hugmyndarík og listræn. Ég elska fjölskylduna mína og borða plöntufæði. Þetta er einungis byrjunin á því sem gerir mig að mér. Ég hef verið golfari í 20 ár og síðustu átta ár atvinnumaður í golfi. Nú er komið að tímamótum í mínu lífi,“ segir Ólafía, og klökknar. „Ég get þetta ekki,“ segir Ólafía, og augljóst að ákvörðunin tekur á. „Það er komið að tímamótum í mínu lífi og ég mun reyna að einblína á önnur áhugasvið í mínu lífi. Þar á meðal eyða tíma með fjölskyldunni minni, dýrmætum tíma með Maroni [syni hennar], frumkvöðlaverkefni sem ég hef haft í kollinum í nokkur ár og það er alltaf mikilvægt fyrir mig að gefa eitthvað til samfélagsins svo ég mun alltaf reyna það eftir bestu getu.“ „Golf hefur alltaf verið stór hluti af mínu lífi og ég er ótrúlega þakklát fyrir það. Ég er búin að vera með besta stuðningsteymi í heimi,“ segir hún og nefnir alla þá styrktar­ aðila sem hafa stutt hana og styrkt fjárhagslega á ferlinum. „Það er til ótrúlega mikið af góðu fólki og allir vilja hjálpa. Fólk sem hefur fylgt mér í gegnum hæstu hæðir og lægstu lægðir. Foreldrar mínir hafa alltaf verið til staðar fyrir mig bara síðan ég var pínulitil, þau eru ástæða þess að ég byrjaði í golfi. Þau hafa verið að skutla mér um allt Ísland á golfmót síðan ég var lítil og núna hjálpað mér á atvinnumanna­ mótaröðinni. Líka sem móðir þá er ekki hægt að spila á mótaröðaröðinni án þess að hafa hjálp. Thomas [Bojanowski, eiginmaður hennar] hefur verið eins og klettur við hliðina á mér og ég væri ekki búin að ná neinum af þessum árangri án hans,“ segir hún. Ég veit að ég er búin að vera rosalega heppin og upplifa alls konar á ævinni. „Ég hef fengið að keppa út um allan heim, ég hef fengið að keppa á stærstu mótaröð í heimi, LPGA, hef keppt á öllum stærstu mótum heims og ég hef unnið alla strákana á Íslandsmótinu í golfi,“ segir Ólafía létt í bragði. „Ég hef verið kjörin íþróttamaður ársins og unnið Evrópumeistaratitil með landsliði Íslands. En stærst af öllu er fólkið sem ég hef hitt á leiðinni og verið samferða mér í þessu og sumir eru vinir til æviloka og munu fylgja mér í næsta kafla.“ „Allir vilja hjálpa og stuðningurinn og meðbyrinn er ómetanlegur. Ég hef brennandi áhuga á að hjálpa íslensku golfi og að leggja mitt að mörkum í barna- og unglingastarfi, kvennagolfi og vonandi hjálpa komandi atvinnumönnum í íslensku golfi.“ „Það er búinn að vera heiður að fylgja ykkur öllum og þessu ævintýri, núna byrjar næsta ævintýri, sjáumst von­ andi,“ sagði Ólafía hún að lokum. Kylfingur óskar Ólafíu velfarnaðar í framtíðinni. Ólafía erhætt Mynd/seth@golf.is

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==