KYLFINGUR 2022

80 I KYLFINGUR I Andrés Kristjánsson var svo heppinn að fara holu í höggi á 6. braut Korpunnar þann 10. júní síðastliðinn og hefur eignast 20.000 Vildarpunkta hjá Icelandair. Fleiri kylfingar hafa haft heppnina með sér í sumar og skiluði inn korti sem veitir þennan frábæra bónus en Icelandair gefur öllum kylfingum sem fara holu í höggi á Korpunni í sumar 20.000 vildarpunkta sem hægt er að nýta í næstu ferð. Ef þú hefur heppnina með þér þá sendirðu mynd af skorkorti, undirrituðu af ritara ásamt mynd af þér eftir draumahöggið í tölvupósti merktur "Hola í höggi" til dora@grgolf.is – Icelandair mun svo millifæra 20.000 vildar­ punkta í framhaldinu. Við óskum Andrési til hamingju með draumahöggið! Hola í höggi á Korpu veitir 20.000 vildarpunkta hjá Icelandair Golfklúbbur Reykjavíkur fagnaði sigri á Íslandsmóti golf­ klúbba 18 ára og yngri í kvennaflokki 2022. Íslandsmótið var leikið á Strandarvelli hjá Golfklúbbnum Hellu. Lið GR var skipað þeim Helgu Signý Pálsdóttur, Auði Sig­ mundsdóttur, Berglindi Ósk Geirsdóttur, Nínu Margréti Valtýsdóttur og Bjarney Ósk Harðardóttur. Perla Sól Sigur­ brandsdóttir var einnig skráð til leiks en tók ekki þátt vegna verkefna erlendis. Í öðru sæti varð lið GM sem skipað var þeim Berglindi Erlu Baldursdóttur, Eydísi Örnu Róbertsdóttur, Maríu Eir Guð­ jónsdóttur, Katrínu Sól Davíðsdóttir og Söru Kristinsdóttur. Í þriðja sæti varð svo lið GKG sem var skipað þeim Katrínu Hörn Daníelsdóttur, Gunnhildi Heklu Gunnarsdóttur, Lauf­ eyju Kristínu Marinósdóttur og Karen Lind Stefánsdóttur. Við óskum okkar stúlkum til hamingju með Íslandsmeist­ aratitilinn. Áfram GR! GR Íslandsmeistari golfklúbba 18 ára og yngri í kvennaflokki

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==