KYLFINGUR 2022

86 I KYLFINGUR I Lokaumferð í Innanfélagsmóti 70 ára og eldri var leikin 24. ágúst, ræst var út frá kl. 08:30- 11:00 og fór keppni fram á Ánni. Alls hafa verið leiknar fimm umferðir og eftir síðustu umferð voru stigameistarar 70 ára og eldri einnig krýnd­ ir. Í lokaumferðinni voru það Guðmundur S. Guðmundsson og Óli Viðar Thorstensen sem voru hæstir á 20 punktum í karlaflokki. Guð­ mundur og Óli Viðar voru einnig tveir af fjórum sem voru hæstir á stigalista karla, ásamt þeim voru það Ragnar Ólafsson og Sveinn Sveinsson sem voru hæstir á lista eftir sumarið. Í kvennaflokki varMagdalenaM. Kjartansdóttir best á 19 punktum í mótinu í gær, Magdalena er jafnframt stigameistari kvenna 70 ára og eldri. Þar sem fjórir voru efstir í karlaflokki var dreg­ ið um bikarinn og var það Guðmundur S. Guð­ mundsson sem hlaut hann. Við óskum stigameisturum og sigurvegurum úr mótum sumarsins innilega til hamingju með sinn árangur. Eldri kylfingum klúbbsins þökkum við kærlega fyrir þátttökuna í sumar og móts­ stjórn fyrir gott utanumhald. Innanfélagsmót 70 ára og eldri Púttað fyrir fugli. Fjórir góðir. Ásgeir Sigurbjörn Ingvason, Friðgeir Óli Sverrir Guðnason, Guð­ mundur S. Guðmundsson stigameistari karla og Elliði Norðdahl Ólafsson. Frá vinstri: Stigameistari kvenna Magdalena M. Kjartansdóttir, Ingólfur Ósk­ arsson, Ragnar Ólafsson og Axel Jóhann Ágústsson.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==