KYLFINGUR 2022
90 I KYLFINGUR I Mercedes-Benz bikarinn 2022 – Holukeppni GR Aðalsteinn Jónsson sigurvegari Um miðjan september fór fram úr slitaleikur í Mercedes-Benz bikarnum – holukeppni GR. Það voru þeir Aðal steinn Jónsson og Arnar Freyr Reyn isson sem léku til úrslita. Um hörkuleik var að ræða þar sem keppendur skip ust á um forystu en fór þannig að lokum að Aðalsteinn hafði betur og er sigurvegari Mercedes-Benz bikarsins árið 2022. Keppni hófst í sumarbyrjun og stóð yfir í allt sumar, leikið er með útsláttar fyrirkomulagi og með með fullum forgjafarmun. Keppnin er opin öllum GR-ingum 19 ára og eldri. Yngsti kepp andinn í ár var 24 ára og sá elsti 81 árs, sá elsti komst áfram í fjórum fyrstu umferðunum og náði þannig í 8 manna úrslit. Það þarf að vinna 7 leiki til þess að sigra en keppendur detta út við fyrsta tap. Keppt hefur verið í þessari keppni frá árinu 2017 og eftirtaldir hafa staðið uppi sem sigurvegarar: 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Margrét Richter 2019 Sigurður Óli Sumarliðason 2020 Júlíus Helgi Júlíusson 2021 Jón Kristbjörn Jónsson 2022 Aðalsteinn Jónsson Öðru hvoru hefur komið upp umræða um það hvort að karlar og konur standi jafnt forgjafarlega. Eins hvort forgjafar munur skipti máli – eiga háforgjafakylf ingar möguleika á móti lágforgjafar kylfingum og öfugt. Það er því gaman að skoða aðeins samanburð á milli hópa: Aldursmunur: Í 42 leikjum unnu eldri keppendur sér yngri á meðan þeir yngri unnu 31 leik. Reynslan virðist því hafa skipt máli í ár. Kyn: Það voru fjórtán leikir á milli karla og kvenna. Konur unnu 6 af þeim og karl ar 8. Það er því ekki marktækur munur þarna á. Forgjöf: Í 38 tilvikum vann keppandi með hærri forgjöf en í 35 tilvikum vann keppand inn sem var með lægri forgjöfina sem telst ekki marktækur munur. Þá má spyrja hvort að það skipti máli ef for gjafarmunur er mikill. Það voru 18 leikir þar sem munaði meira en 10 forgjafarhöggum á keppendum. Í 8 leikjum vann keppandi með hærri forgjöfina en í 10 viðureignum sá/sú með lægri forgjöfina. Niðurstaðan úr þessari samantekt er sú að forgjafarkerfið okkar virkar. Þessu skemmtilega móti er lokið í ár og geta kylfingar farið að hlakka til keppninnar á næsta ári. Við óskum Aðalsteini Jónssyni til hamingju með Mercedes-Benz bikar inn 2022!. Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Bílaumboðið Askja BOLTAFÖR Á FLÖTUM Boltaför hafa verið áberandi á flötum félagsins í sumar og viljum við ítreka það við félagsmenn og kylfinga sem leika á völlum félagsins að lagfæra eftir sig boltaför sem myndast á flötum. Það er aldrei of oft minnst á það að ganga vel um vellina okkar og að við vinnum saman að því að gera góða velli enn betri.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==