KYLFINGUR 2022

92 I KYLFINGUR I Karl Jóhannsson frá Golfklúbbi Reykja­ víkur er sjálfboðaliði ársins 2022 hjá Golfsambandi Íslands. Karl fékk viður­ kenningu þess efnis á formannafundi Golfsambands Íslands sem fram fór laugardaginn 12. nóvember í Laugar­ dalshöll. Þetta er í 9. sinn sem þessi viðurkenning er afhent hjá Golfsam­ bandi Íslands. Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, sagði eftirfarandi þegar sjálfboðaliði ársins var heiðraður á formannafundinum. „Að starfa fyrir íþróttafélag sem sjálf­ boðaliði er alla jafna gefandi og skemmtilegt. Karl Jóhannsson hlýtur í dag viður­ kenningu sem sjálfboðaliði ársins hjá Golfsambandi Íslands fyrir árið 2022. Karl sá tækifæri til að bæta og gera félagsstarf eldri kylfinga öflugra hjá GR fyrir nokkrum árum og hefur haldið því áfram.Þannig hefur hann haft áhrif á golfiðkun eldri kylfinga allan ársins hring og starfið vex og dafnar. Eldri kylfingar eru duglegir að mæta og taka þátt í golfmótum á sumrin á vegum Kalla. Auk þess hefur hann skipulagt innipútt og verið með bingó einu sinni ímánuði yfir vetrarmánuðina. Auk þess hefur Karl unnið ýmis önnur sjálfboðaliðsstörf fyrir GR allt frá árinu 1965. Hann var formaður GR 1983–1985 auk þess sem hann hef gegnt hinum ýmsu trúnaðarstörfum í gegnum tíðina, verið alls 10 ár í stjórn, og starfað við undirbúning og fram­ kvæmd ýmissa viðburða og verið við­ riðinn uppbyggingu klúbbsins til fjölda ára. Golfsamband Íslands vill þakka Karli fyrir óeigingjarnt starf í þágu golf­ íþróttarinnar á Íslandi og óskar honum til hamingju með tilnefninguna að vera sjálfboðaliði ársins hjá golfsamband­ inu.“ Við óskum Kalla okkar til hamingju með tilnefninguna og þökkum honum fyrir óeigingjarnt starf í þágu eldri kylfinga GR ásamt öðrum störfum sem hann hefur sinnt fyrir klúbbinn í gegn­ um tíðina. KARL JÓHANNSSON er sjálfboðaliði ársins 2022 Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands, veitti Karli Jóhannssyni viðurkenninguna „sjálfboðaliði ársins 2022“. Karl Jóhannsson ávarpaði fundinn og sagði frá skemmtilegri sögu úr félagsstarfi GR. Myndir /seth@golf.is

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==