KYLFINGUR 2022
94 I KYLFINGUR I Haustmót GR kvenna fór fram 11. september á Korpu þar sem lykkjan Áin/landið var spiluð í algjörlega frábæru veðri eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Haustmótið er lokapunkturinn í sumarstarfi GR kvenna ár hvert og voru 95 konur skráðar til leiks að þessu sinni, sem er frábær þátttaka. Keppnisfyrirkomulagið var punktakeppni með hámarks forgjöf 32, veitt voru verðlaun fyrir 1.–3. sæti, einnig voru veitt verðlaun fyrir 12., 21., 39. og 52. sætið, lengsta drive á 26. braut ásamt nándarverðlaunum á öllum par þrjú brautum. Úrslit mótsins urðu sem hér segir: 1. sæti Hlín Elfa Birgisdóttir með 45 punkta 2. sæti Anna Sigurjónsdóttir með 44 punkta 3. sæti Ágústa Hugrún Bárudóttir með 43 punkta 12. sæti Hólmfríður Bragadóttir með 39 punkta 21. sæti Herdís Sveinsdóttir með 37 punkta 39. sæti Ásta Óskarsdóttir með 35 punkta 52. sæti Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir með 33 punkta Haustmeistari GR kvenna 2022 er Hlín Elfa Birgisdóttir . Lengsta Drive á 26. braut: Aðalbjörg Ársælsdóttir Næstar holu: 13. braut – Berglind Þórhallsdóttir 1,89m 17. braut – Hlín Elfa Birgisdóttir 2,33m 22. braut – Steinunn Björk Eggertsdóttir 5cm 25. braut – Svenný Sif Rúnarsdóttir KVENNASTARF GR
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==