KYLFINGUR 2023
PERLA SÓL HLAUT HÁTTVÍSI BIKARINN ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ Háttvísisbikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá einstak lingur sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Perla Sól Sigurbrandsdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár, annað árið í röð. Hún er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkendur – samviskusöm, metn aðarfull og dugleg við æfingar ásamt því að vera einstaklega yfirveguð innan vallar sem utan. Perla Sól keppti mikið erlendis í ár á mótum eins og Junior Orange Bowl International, Portuguese Internati onal Ladies Amateur, German Girls Open, Annika Invitational Amateur, EM einstaklinga og World Junior Girls Championship. Hún var valin ein af fjórum kylfingum til að keppa með úrvalsliði Evrópu í Asia Pacific Golf Confederation (APGC) Junior Champ ionship, sem er mikill heiður og sýnir hversu sterkur kylfingur hún er á heimsvísu. Perla Sól var einnig valin ein af sex til að keppa fyrir hönd Íslands með kvennalandsliðinu í Evrópumóti í liðakeppni áhugakylfinga. Dagana 15. til 20. ágúst keppti Perla á R&A Girls Amateur Championship, þar sem hún lék á einu höggi undir pari í högg leiknum og komst í 64 manna úrslit, en tapaði holukeppninni á móti sigurveg ara mótsins á 18. holu. Á Íslandi varð Perla sigursæl á Stiga mótaröð GSÍ þar sem hún varð Íslands meistari í holukeppni, sigraði Korpu bikarinn og varð í kjölfarið Stigameistari Stigamótaraðar GSÍ. Þar fyrir utan var hún í baráttu um að verja Íslandsmeist aratitilinn í höggleik og hafnaði í 2. sæti. Þegar þetta er skrifað er Perla Sól í 308. sætinu á heimslista áhugakylfinga. Perla Sól er alltaf til fyrirmyndar og er glæsilegur fulltrúi Golfklúbbs Reykja víkur. Þetta er í tuttugasta skipti sem bikar inn er afhentur og hefur það einu sinni áður gerst að sami kylfingurinn hlýtur hann tvö ár í röð, það var Ólafía Þórunn árið 2007 og 2008. Þeir sem hafa áður fengið útnefning una eru eftirfarandi kylfingar: 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Á. Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Elvar Már Kristinsson 2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir 2020 Tómas Eiríksson Hjaltested 2021 Helga Signý Pálsdóttir 2022 Perla Sól Sigurbrandsdóttir 2023 Perla Sól Sigurbrandsdóttir I KYLFINGUR I 17
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==