KYLFINGUR 2023
Ragnhildur Kristinsdóttir Íslandsmeistari 2023 Ragnhildur var með tveggja högga forskot fyrir loka hringinn á -2 samtals en Hulda Clara Gestsdóttir, GKG og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK komu þar á eftir á pari vallar. Hulda Clara byrjaði gríðarlega vel á lokahringnum og var með þriggja högga forskot á Ragnhildi eftir 11. holur en hún tapaði fjórum höggum á síðustu fimm holum lokahringsins á meðan Ragnhildur lék síðustu 9 holur vallarins á einu höggi undir pari. Hulda Clara endaði á 1 höggi yfir pari vallar og var jöfn í 2.-4. sæti. Andrea Björg Bergsdóttir, GKG, lék best allra á lokahringnum eða 68 höggum og lauk hún leik á 1 höggi yfir pari samtals, líkt og Perla Sól Sigurbrands dóttir, GR, sem hafði titil að verja. Andrea, Hulda Clara og Perla Sól deildu því 2. sætinu á þessu Íslandsmóti. Lokastaðan: 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 283 högg (70-70-71- 71) (-1) 2.-4. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR 285 högg (76-69- 69-71) (+1) 2. -4. Andrea Björg Bergsdóttir, GKG 285 högg (74-71- 72-68) (+1) 2.-4. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG 285 högg (70-76-67- 72) (+1)
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==