KYLFINGUR 2023

48 I KYLFINGUR I Ný keppni var sett á laggirnar í sumar. Það var liðakeppni fyrir félagsmenn GR sem eru 65 ára og eldri. Fyrirfram var ákveðið að leika skyldi 7 umferðir og leikmenn hefðu 7 til 10 daga til þess að leika hverja umferð. Raðað var í hverja umferð eftir stöðu keppninnar hverju sinni eftir svokölluðu Monrad-kerfi sem þekkt er úr skák. Keppt var í fjórleik með forgjöf sem þýðir að tveir leikmenn leika gegn öðrum tveimur og borin saman betra skorið á hverri holu. Leiknar voru 9 holur á Korpu í hverri umferð. Það voru 16 lið með 32 keppendum sem skráðu sig til leiks. Úrslit liggja fyrir í keppninni og þar lenti í þriðja sæti liðið Hinir heppnu, en það voru Hans Óskar Isebarn og Daði Kolbeinsson. Í öðru sæti var Bráðin með leikmennina Sigurdór Stefánsson og Guðmund Rúnar Bragason. Bæði liðin fengu 5 vinninga af 7 mögulegum en Bráðin vann innbyrðis viðureign þessara liða og hljóta því annað sætið. Sigurliðið í þessari keppni var Tengdó sem hlaut 6,5 vinninga af 7 mögu­ legum. Það lið er skipað þeim Guð­ mundi S. Guðmundssyni og Ragnari Ólafssyni. Þess skal getið að Guðmudur er tengdafaðir Ragnars. Við óskum Tengdó til hamingju með glæsilegan sigur í Liðakeppni öldunga. Þetta er í fyrsta sinn sem þau eru stiga­ meistarar á stigamótaröð GSÍ en fyrst var keppt um stigameistaratitla í kvenna- og karlaflokki á Íslandi árið 1989. Logi lék á alls sex mótum á tímabilinu. Hann sigraði á Íslandsmótinu í golfi 2023 og varð í öðru sæti á Korpubikarnum. Hann varð fjórði á fyrsta móti tímabilsins í Leirunni, hann varð einnig í 6., 12. og 19. sæti á tímabilinu. Alls fengu 154 kepp­ endur stiga á stigamótaröð GSÍ á þessu tímabili. Perla Sól tók þátt á fjórum af alls sex mótumá tímabilinu. Hún sigraði á tveimur þeirra og þar á meðal Íslandsmótinu í holukeppni. Hún varð tvívegis í öðru sæti. Mynd /seth@golf.is LIÐAKEPPNI 65 ÁRA OG ELDRI GR-INGA Tengdó báru af öðrum liðum Að verðlaunaafhendingu lokinni. Aftari röð frá vinstri: Daði Kolbeinsson, Hans Isebarn, Sigurdór Stefánsson. Í forgrunni eru sigurvegararnir Guðmundur S. Guðmundsson, og tengdasonurinn Ragnar Ólafsson. Á myndina vantar Guðmund Rúnar Bragason liðsfélaga Sigurdórs. Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR og Logi Sigurðsson GS eru stigameistarar 2023

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==