KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 53 Kylfingur náði tali af Hilmari nú á haustdögum á Korpunni, áður en hann lagði af stað í enn einn golf­ hringinn með félögunum sínum til margra ára, og forvitnaðist um golfið fyrr á árum og til dagsins í dag. Hvenær gerðistu félagi í GR? Ég mun hafa gengið í GR á vormánuð­ um 1957, þá 20 ára, og þá var golf­ völlurinn staðsettur í Öskjuhlíðinni. Hvað varð til þess að þú fórst að leika golf? Tildrög þess að ég gekk í klúbbinn voru þau að Jóhann Sófusson frændi minn var í vinnu hjá foreldrum mínum við gleraugnagerð og var ég þar í námi. Jói frændi, eins og ég kallaði hann iðulega, átti nokkra góða og skemmtilega félaga sem flestir voru í golfklúbbum og tóku þeir mig með. Þetta voru góðir og kátir karlar og flestir mjög liðtækir í golfi. Má þar nefna sem dæmi Ólaf Bjarka Ragnarsson, Helga Jakobsson og Aðal­ stein Guðlaugsson. „Liðtækur í flestu en enginn afreksmaður“ – segir Hilmar Herbertsson semgerðist félagi í GR fyrir 66 árum Hilmar slær af 6. teig á gamla Öskjuhlíðarvellinum. Mynd: Golfmyndir.is/ Úr safni Guðlaugs Guðjónssonar.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==