KYLFINGUR 2023
I KYLFINGUR I 59 Björgvini Elíassyni og Ingibjörgu Aðal steinsdóttur, Viðari Þorsteinssyni og Guðrúnu Eiríksdóttur, Guðmundi Gunnarssyni og Maríu Magnúsdóttur, Kára Elíassyni rakara, Jens Sörensen og Bettsy, Gunnari Þorleifssyni og Hildi Kristinsdóttur, og bræðrunum Knúti og Sveini Björnssonum en þeir voru hálf bræður Ingólfs Isebarn. Frá aldamótum 2000 og þar til 2012 spiluðum við mikið á Florida, á ýmsum stöðum, svo sem Ponicana, Sarasota, Timberwood, Daytona Beach, en þó mest á Ventura vellinum í Orlando. Þú spilar enn í dag reglulega með félögunum? Árið 1991 í október, fórum við í 10 daga golfferð með KLP til Mallorca. Vorum þá á „Santa Ponsa“. Þessi ferð varð eftirminnileg, því þar kynntumst við frábærum golffélögum sem eru enn í dag okkar bestu golffélagar, 32 árum seinna. Þessir frábæru golffélagar eru: Jó hann Jón Jónsson og Margrét Egils dóttir, Jóhannes Óli Garðarsson og Hulda Jóhannsdóttir, Ögmundur Guð mundsson (dáinn 2018) og Kristín Guðjónsdóttir (Bíbí). Árið 2002 gekk til liðs við okkur félagana öflugur félagi, Jóhann Arngrímur Jónsson og kona hans Rósa Daníelsdóttir. Þau eru nokkrum árum yngri en við hin og hleyptu nýju blóði í liðið! Þessi hópur hefur kallað sig hinum ýmsu nöfnum gegnum tíðina: Á Kanarí voru Íslendingrnir „Baccalous“. Við höfum kallað okkur „Farnir“, „Súpu gengið“ og „Cacaoboys“, enda alltaf spilað uppá eitthvað, t.d. súpu eða kakó! Margir hafa verið á biðlista til að komast í félagsskapinn en ekkert sæti er laust. Mér þykir ekki ólíklegt að við höfum farið í um 50 golfferðir í gegnum árin. Hvernig hefur golfíþróttin breyst síðan þú byrjaðir? Golfíþróttin hefur mikið breyst á þess um 66 árum sem ég hef upplifað, í upphafi voru einungis þrír golfvellir á Íslandi, en ekki veit ég hvað þeir eru margir í dag, ábyggilega um eða yfir 100 talsins. Iðkendur innan við 100 manns en í dag eru þeir orðnir fleiri þúsund. Hraðinn og allt skipulag er orðið margbrotnara. Önnur áhugamál? Helstu áhugamál mín í gegnum árin eru fjölskyldan, vinnan og íþróttir. Lék knattspyrnu á yngri árum með Val, badminton með G.M.H. í TBR og lítils háttar lax- og silungsveiði. Niðurstaða: Liðtækur í flestu, en ekki afreksmaður í neinu. Eina golfdellu hef ég haft: Hef í gegnum tíðina haft þann háttinn á, að kaupa alltaf 6 golfbolta á þeim golfvöllum sem ég hef spilað á erlendis; notað þrjá og farið heim með þrjá. Þetta er orðið dágott safn og þykir mér vænt um þessa bolta. Eitt sinn keypti ég golfbolta sem hétu ADMIRAL 480 (sjóliðsforingi) í Þýskalandi, mig minnir á Timmendorfer Strand Golf og Sporthotel, en þar gistum við í 5 nætur og spiluðum golf. Boltarnir eru allir farnir, félagar mínir segja að þeir hafi allir orðið úti eða drukknað í tjörninni við flötina á 15. braut í Grafarholti! Hvað stendur uppúr í gegnum árin þín hjá GR? Golfíþróttin hefur breytt lífi mínu ein ungis til góðs þar hef ég eignast marga góða vini og félaga, en golfarar eru að mínu mati, yfirleitt prúðir og umburðar lyndir. Upp úr standa margar góða minn ingar. Karlpeningurinn í Súpugenginu frá 2002 á leið í golf nú í október á Korpúlfsstaðavelli. Fv.: Jóhann Jón Jónsson, Jóhann A. Jónsson, Hilmar og Jóhannes Óli Garðarsson. Mynd: HBK. Hilmar undirbýr upphafshögg á Landinu á Korpúlfsstaðavelli. Mynd: HBK.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==