KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 61 Hvenær varðstu félagi í GR? Ég varð félagi í GR sumarið 1965, þegar ég var 13 ára. Af hverju varð golf fyrir valinu? Því réði tilviljun, en ég átti á þessum árum bekkjarbróður sem var á kafi í golfi. Sá góði drengur heitir Hans Ise­ barn, en hann var á þessum árum alger yfirburðarkylfingur í unglingagolfinu. Hann dró mig með sér í golf. Fyrsti hringurinn var þó ekki alveg nóg til að kveikja neistann hjá mér, en beint í kjölfarið dró mig í golf annar þekktur GRingur, öðl­ ingurinn Sigurður Matthías­ son. Eftir hringi með þessum tveimur varð ekki aftur snúið. Hætti ég þar með snarlega í öðru áhugamáli sem átti hug minn á þessum árum, en það var hestamennskan. Hver er forgjöfin í dag? Hún er 16 en ég stefni á að fara undir 10 næsta sumar! Hér er kannski rétt að nefna að ég hef haft þetta markmið í nokkur ár en af einhverri óskiljanlegri ástæðu gengur mér hægt við lækkunina. Korpan eða Grafarholt? Korpan er frábær en Grafar­ holtið er skemmtilegra að mínu mati. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Mér hefur gengið ágætlega í golfinu, í það minnsta finnst mér alltaf gaman sem auðvitað er aðalatriðið. Sigrarnir hafa ekki verið margir en eitthvað hef ég grísast í gegnum tíðina. Eftirminni­ legasti sigur minn var í unglingamóti þar sem ég lenti í mikilli baráttu við fyrrnefndan Hans Isebarn á lokahol­ unum í Grafarholtinu og marði sigur gegn öllum líkum! Hefurðu farið holu í höggi? Nei, aldrei. Fengið þó ótal oft „næstum því!“ Já, og óteljandi erni á löngum par 4 holum og einu sinni „næstum því“ albatross á Nesinu. Eftirminnileg atvik eða skemmti­ legar sögur? Allir kylfingar eiga óteljandi eftirminni­ legar minningar. Allar bestu minning­ arnar mínar eru þó þess eðlis að þær verða varla sagðar í stuttu máli. Í þess stað skal ég segja eina stutta rauna­ sögu. Þeir eru til sem eru svo illa innrættir að þeir glotta þegar ég segi hana! Hún er þannig, að ég var á sínum tíma með skáp á leigu fyrir golfsettið mitt í kjallara skálans í Grafarholti. Skápinn hafði ég í 10 ár ef ég man rétt. Öll þessi ár geymdi ég flösku af Jack Daniel´s í skápnum til þess að geta skálað almennilega með vinum ef ég fengi holu í höggi. Flöskuna tók ég með mér óopnaða þegar ég fór í skápinn í síðasta sinn og það sorglega er, já lang sorglegasta er, að flaskan er óopnuð enn í dag! Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Sá heitir Gary Evans. Hans hátindur í golfinu var þegar hann varð höggi á eftir Ernie Els, sigurvegara í The Open árið 2002. Hringinn sem við Gary spil­ uðum saman á Eagle Creek vellinum í Orlando spilaði hann á -6. Ég spilaði á eitthvað örlítið lakara skori en dagurinn er mér ógleymanlegur! Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Þessu er ekki einfalt að svara. Ég hef spilað mjög marga góða velli, þar á meðal nokkra velli sem spilaðir eru á PGA mótaröðinni. Ef ég ætti að velja einn völl til að spila á morgun mundi ég velja Bay Hill í Orlando. Hvort hann er sá besti sem ég hef spilað skal ég ekki fullyrða um en mér finnst hann sá skemmtilegasti. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Já, stjórnendur klúbbsins mættu vera metnaðarfyllri. Gera vellina okkar fallegri og snyrtilegri. Smáu atriðin skipta öllu máli og að laga þau kostar smáaura. Nær allir meðlimir vita hvað ég er að tala um. Eitthvað að lokum? Ég er farinn að hlakka til næsta sumars! ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Ólafur Haukur Johnson:

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==