KYLFINGUR 2023
I KYLFINGUR I 67 A flokkur – forgjöf 0–31,9 1. sæti með 43 punkta úr 2 hringum var Sigríður Rafnsdóttir og hún fékk í verðlaun gjafabréf hjá Golfa.is og freyðivín. 2. sæti með 42 punkta úr 2 hringum var Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir og fékk hún í verðlaun gjafabréf hjá Golfa.is og freyðivín. 3. sæti með 42 punkta úr 2 hringum var Kristín Halla Hann esdóttir og fékk hún í verðlaun gjafabréf hjá Golfa.is og freyðivín. B flokkur – forgjöf 32–54 1. sæti með 45 punkta úr 2 hringum var Lilja Halldóra Sturlu dóttir og fékk hún í verðlaun gjafabréf hjá Golfa.is og freyði vín. 2. sæti með 42 punkta úr 2 hringum var Ragnheiður Guð laugsdóttir og fékk hún í verðlaun gjafabréf hjá Golfa.is og freyðivín. 3. sæti með 40 punkta úr 2 hringum var Guðrún Björnsdóttir og fékk hún í verðlaun gjafabréf hjá Golfa.is og freyðivín. Þessi mótaröð var í samstarfi við golfa.is . Okkur fannst til valið að prófa þetta þegar dag er tekið að stytta og ekki alltaf tími og dagsbirta fyrir 18 holur. 4 umferðir voru leiknar á 9 holu lykkjunum á Korpu. Við munum skoða hvort forsendur verða fyrir því að endurtaka mótið þar sem þátttaka var undir væntingum. Haustmót Sumarið var svo gert upp með því að halda Haustmót GR kvenna í Grafarholti 17. september. Spilað var punktakeppni og höggleikur. Mótið var vel sótt og var orðið fullt í mótið á innan við sólarhring eftir að skráning hófst og biðlistar farnir að myndast. Eftir nokkurra ára hlé var loks krýndur höggleiksmeistari GR kvenna sem fékk farandbikar ásamt ýmsum vinningum. Tvær konur enduðu á 86 höggum sem voru þær Helga Friðriksdóttir og Guðný María Guðmundsdóttir en Helga var betri á seinni 9 og var því krýndur sigurvegari. Punkta keppnin fór þannig að Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir sigraði með 38 punkta. Nánar um Haustmótið á næstu síðu. Lokahóf Eftir Haustmótið var svo haldið allsherjar lokahóf GR kvenna til að loka sumarmótaröð, haustmótaröð og haustmótinu. Boðið var upp á dýrindis mat frá KH Klúbbhúsi ásamt eftirréttum. Verðlaun voru veitt fyrir 3 mót auk fjölmargra útdráttarverðlauna. Veitt voru nándarverðlaun fyrir mótin og lengsta drive í Haustmótinu. Jón Sigurðsson trúbador kom og hélt uppi miklu fjöri eftir matinn og myndaðist skemmtileg stemning í hópnum. Kvennanefndin ákvað að bjóða fjórum konum sem heiðursgestum í lokahófið en það eru þær Valgerður Proppé 94 ára, Hrafnhildur Einarsdóttir 97 ára, Guðrún Andrésdóttir 90 ára og Selma Hannesdóttir 90 ára. Þessar konur eru fyrirmyndir okkar og aldursforsetar GR kvenna og voru þær heiðraðar með gjöfum og lófataki. Að lokum viljum við í kvennanefndinni þakka fyrir gott samstarf í sumar og öllum þeim sem hafa styrkt okkur með gjöfum og verðlaunum. Síðast enn ekki síst ykkur GR konum fyrir að mæta í viðburðina hjá okkur því án ykkar væri lítið kvennastarf í GR. Hlökkum til að starfa áfram með ykkur og í vetur munum við vera með dagskrá í golfhermum og púttmótaröð. Sjá svipmyndir frá lokahófi GR kvenna á næstu síðu. Heiðursgestir á lokahófi GR-kvenna. Frá vinstri: Selma Hannes dóttir, Guðrún Andrésdóttir og Hrafnhildur Einarsdóttir. Á myndina vantar Valgerði Proppé. Helga Friðriksdóttir varð höggleiksmeistari 2023. Sólveig Jóhanna Haraldsdóttir fékk flesta punkta á Haustmótinu.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==