KYLFINGUR 2023
Lokaumferð í Innanfélagsmóti 70 ára og eldri fór fram föstudaginn 15. september fór en leiknar voru alls fimm umferðir í sumar. Mótin hafa verið vel sótt af eldri kylfingum klúbbsins enda vel utan um þau haldið og var sérstök verðlaunaafhending haldin í lok hverrar umferðar. Keppt var í punktakeppni karla og kvenna ásamt því að verðlaun voru veitt fyrir besta skor. Stigameistarar sumarsins voru krýndir en þeir voru þau Guðmundur Stefán Jónsson og Inga Jóna Stefánsdóttir. Kylfingur óskar þeim til ham ingju með sigurinn. Innanfélagsmótaröð 70 ára og eldri Guðmundur og Inga Jóna stigameistarar LEK mót í 1. deild golfklúbba 65+ var leikið í byrjun ágúst og urðu sveitir GR sigursælar. Keppni í karlaflokki fór fram í Önd verðarnesi og stóð sveit GR uppi sem sigurvegari, í öðru sæti varð Nesklúbburinn og Golfklúbbur Suðurnesja í því þriðja. Í GR sveit karla voru: Hannes Eyvinds son, Hans Isebarn, Hörður Sigurðsson, Jónas Kristjánsson, Kolbeinn Kristins son, Óskar Sæmundsson, Ragnar Ól afsson, Sæmundur Pálsson og Sigurjón Á. Ólafsson – liðsstjóri. Keppni í kvennaflokki fór fram á Korp unni og léku okkar konur því á heima velli. Sigurvegari í kvennaflokki varð sveit GKG, sveit GR varð í öðru sæti og GM í því þriðja. GR sveitina skipuðu: Guðrún Garð ars, Jóhanna Ingólfsdóttir, Laufey V. Oddsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Stef anía M. Jónsdóttir og Margrét Geirs dóttir – liðsstjóri. Kylfingur óskar sveitum GR innilega til hamingju með frábæran árangur! LEK MÓT Í 1. DEILD GOLFKLÚBBA 65+ SVEITIR GR SIGURSÆLAR I KYLFINGUR I 73
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==