KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 75 Bylting hefur orðið í vetraræfingaaðstöðu kylfinga á Íslandi á undanförnum árum með mikilli þróun í golfhermabúnaði. Fjölmargar golfhermaaðstöður hafa verið opnaðar víða um landið og bæta þær æfingaastöðu kylfinga yfir vetrarmánuð­ ina til muna. Á undanförnum árum hefur Golfklúbbur Reykjavíkur tekið æfingasvæðið Bása til gagngerrar endurnýjunar og eru Básar nú næst stærsta golfæfingasvæði í heiminum sem búið er svoköllum „Trackman Range“ búnaði. Það má í raun segja að í Básum séu nú 50 golfhermar. Eini munurinn á þeim og öðrum golfhermum er að í Básum er slegið undir beru lofti með geislahitara til að ylja kylfingnum meðan annars staðar er slegið í tjald innandyra. „Í Básum er hægt að spila golfvelli gegnum herminn og gera það sem mikilvægast er, að æfa golf yfir vetrartímann,“ segir Margeir. Ein klukkustund í venjulegum golfhermi kostar á bilinu 3-6000 krónur. 50 bolta fata í Básum kostar 900 krónur. Að slá úr 50 bolta fötu tekur um 30–45 mínútur. Góður afsláttur er svo veittur kaupi kylfingar boltakort í Básum, en afslátt­ urinn getur numið allt að 35% sé keypt Demantskort. Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Bása, www.basar. is. Hvernig er aðstaðan til golfkennslu í Básum? „Aðstaðan hér er frábær. Það er ótrúlegt hvað það munar miklu að geta staðið undir þessum frábæru nýju hitalömpum. Það er varla hægt að lýsa því, fólk verður að koma og prófa.“ Í vetur og vor býður Margeir GRingum uppá 6 mánaða golfæfingar sem hefjast í janúar og standa yfir fram í júní. Æft verður einu sinni í viku og öll sú aðstaða sem GR býður félagsmönnum uppá verður nýtt til hins ítrasta. Æft verður í Básum, á innipúttflöt á Korpu, á Grafarkotsvelli, Thorsvelli, boðið verður uppá fyrirlestra, fræðslu á netinu og svo lýkur námskeiðinu með 9 holu spilkennslu í maí / júní. – segir Margeir Vilhjálmsson PGA-golfkennari í stuttu spjalli við Kylfing Margeir við golfkennlu í Básum.

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==