KYLFINGUR 2023

Þú ert sem sagt ekki sammála því að æfingaaðstaða hjá GR sé lakari en hjá mörgum öðrum klúbbum? „Ég er ekki viss um að GR-ingar átti sig á hversu góða að­ stöðu klúbburinn býður uppá til golfiðkunar yfir veturinn. Það eru náttúrlega miklu fleiri en bara GR-ingar sem koma í Bása, en á ársgrundvelli fá Básar jafn margar heimsóknir og allir golfvellir klúbbsins til samans. Okkar bestu kylfingar eru mjög duglegir að koma og slá bolta hvernig sem viðrar, enda vel hægt að æfa hér þótt það snjói. Núna í janúar ætlum við að hvetja félagsmenn í GR til að hefja æfingar – mæta einu sinni í viku og slá bolta. Halda sér við yfir köldustu mánuðina. Svo eiga náttúrulega allir að mæta á púttkvöldin sem eru frábær. Púttflötin á Korpu er stærsta innipúttflöt landsins. Sú aðstaða er opin fyrir alla félagsmenn alla virka daga yfir vetrartímann. Eina sem þarf að gera er mæta með pútterinn og einn golfbolta. Bara æfa sig. Eða taka með sér vin til að keppa við. Stutta spilið er gríðarlega mikilvægt í golfinu og frábært að hafa svona frábæra aðstöðu til að æfa púttin.“ „Hver sá kylfingur sem er tilbúinn að æfa sig yfir veturinn og fá leiðbeiningar frá golfkennara mun sjá mikinn árangur á komandi sumri. Upplýsingar um æfingar og námskeið hjá mér er hægt að fá á heimasíðu minni golfnamskeid.is eða senda mér línu á margeir@golfnamskeid.is. Félagar mínir Arnar Snær Hákonarson (arnarsn@grgolf.is ) og Snorri Páll Ólafsson ( spolafssongolf@gmail.com) kenna einnig í Básum og bjóða uppá námskeið fyrir alla kylfinga. Þannig er úr nægu að velja fyrir kylfinga af öllumgetustigum.“ I KYLFINGUR I 77

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==