KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 9 Ragnhildur Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir tryggðu sér sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópu­ mótaröðina 2024. Lokaúrtökumótið fer fram 16. til 20. nú í desember í Marokkó. Leiknir voru þrír 18 holu hringir eða alls 54 holur á þremur keppnisdögum og kepptu leikmenn alltaf á sama vellinum. Alls tóku 221 leikmenn þátt, sem er metþátttaka, og var keppt á þremur völlum á Lalla Aicha golfsvæðinu í Marokkó. Til samanburðar voru 156 keppendur á 1. stigi úrtökumóts­ ins í fyrra. Ragnhildur lék á Samanah vellinum á Lalla Aicha golf­ svæðinu. Hún lék samtals á -1 eða 215 höggum (66-71-78). Hún endaði í 10. sæti á þessum velli og komst örugglega áfram. Guðrún Brá lék frábært golf þegar mest á reyndi á loka­ hringnum á Rotana vellinum á Lalla Aicha golfsvæðinu í Marokkó. Þar lék hún á 66 höggum eða -6. Hún lék hringina þrjá á 69 (-3), 78 (+5) og 66 (-6). Hún endaði í 13. sæti en alls komust 31 keppandi áfram af þessum velli. Á lokaúrtökumótinu sem fram fer á Al Maaden og Royal Golfvöllunum í Marrakech keppa 156 leikmenn um keppnis­ rétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili. Þar koma inn um 90 leikmenn sem léku á LET Evrópu­ mótaröðinni á síðasta tímabili en náðu ekki að halda keppnisrétti sínum. Eins og áður segir má gera ráð fyrir að um 60 keppendur komist inn á lokaúrtökumótið af 1. stiginu í Marokkó, og til viðbótar koma 11 leikmenn af 1. stiginu sem fram fór á Indlandi nýverið. Niðurskurður er eftir fjórða keppnisdaginn á lokaúrtöku­ mótinu og að loknum fimmta keppnisdegi fá 20 efstu keppnisrétt á LET. Keppendur í sætum 21 til 50 fá takmark­ aðan keppnisrétt á LET á næsta tímabili og keppendur sem komast í gegnum niðurskurðinn eftir fjórða keppnisdag fá einnig takmarkaðan keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni. Guðrún Brá hefur verið með keppnisrétt á LET Evrópu­ mótaröð atvinnukylfinga undanfarin þrjú ár en þrefaldi Íslandsmeistarinn í golfi náði ekki að halda keppnisrétti sínum á síðasta tímabili. Keiliskonan lék á lokaúrtökumótinu í fyrra og endaði þar í 42. sæti sem gaf henni takmarkaðan keppnisrétt á LET á síðasta tímabili. Ragnhildur Kristinsdóttir, sem er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, var með keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á síðasta tímabili enmótaröðin er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í kvennaflokki. GR-ingurinn tók þátt í fyrsta sinn í fyrra á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LET Evrópumótaröðina. Þar endaði hún í 81. sæti sem gaf henni keppnisrétt á LET Access atvinnumótaröðinni á síðasta tímabili. Ragnhildur og Guðrún Brá komust inn á lokaúrtökumótið fyrir LETEvrópumótaröðina Mynd /seth@golf.is .

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==