KYLFINGUR 2023
I KYLFINGUR I 97 Íslandsmót eldri kylfinga 2023 fór fram á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 13. til 15. júlí 2023. Alls tóku 113 keppendur þátt og var keppt í fjórum flokk um, 50 ára og eldri í kvenna – og karlaflokki, og 65 ára og eldri í kvenna – og karlaflokki. Leikinn var 54 holu höggleikur án forgjafar á þremur dögum. Karlaflokkur +50 Jón Karlsson, GR, er Íslandsmeistari 2023 í karlaflokki 50 ára og eldri annað árið í röð. Hann sigraði með tveggja högga mun. Hjalti Pálmason, GM, varð annar og Sigurbjörn Þor geirsson, GFB, varð þriðji. Kvennaflokkur +65 Oddný Sigsteinsdóttir, GR, er Íslandsmeistari í golfi 2023 í kvennaflokki 65 ára og eldri. Oddný sigraði með þriggja högga mun. Helga Sveinsdóttir, GS, varð önnur og Björg Þór arinsdóttir, GO, varð þriðja. Íslandsmót eldri kylfinga Jón og Oddný Íslandsmeistarar David þarf varla að kynna fyrir félagsmönnum en hann hefur sinnt þjálfun barna og unglinga hjá klúbbnum í rúm 20 ár. Hann lærði golfkennslu hjá Leeds Learning og var þar í tæp 9 ár áður en hann flutti til Íslands og hóf störf hjá Golfklúbbi Akureyrar þar sem hann var í 17 ár. David kom fyrst til Golfklúbbs Reykjavíkur árið 2002 og hefur verið með okkur meira og minna síðan. Við erum stolt af því að hafa David í okkar röðum og óskum honum til hamingju með þessa viðurkenningu. David G. Barnwell heiðraður Hefur nú veriðmeðlimur PGA í 40 ár
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==