KYLFINGUR 2023

I KYLFINGUR I 99 Hvenær varðstu félagi í GR? Varð félagi 2004. Af hverju varð golf fyrir valinu? Hvers vegna golf varð fyrir valinu, ég gæti sagt, pabbi byrjaði 1984 þegar ég var 16 ára, eiginmaðurinn fór aðeins að fikta við golfið eftir að foreldrar mínir keyptu sumarbústað á Flúðum við þriðja teig, tengdaforeldrar mínir stunduðu golf og mágur minn, en ein­ faldasta svarið; ég prófaði og kolféll. Hver er forgjöfin í dag? Forgjöfin er 13,5 hún er eins birtan á Íslandi hækkar á vorin og lækkar síð­ sumars. Korpan eða Grafarholt? Það er eins og að velja á milli barnanna minna. Mér finnst báðir vellirnir jafn skemmtilegir eins ólikir og þeir eru. Grafarholtið hefur hæðarmismuninn, gaman að slá upphafshöggin, dásam­ legt útsýni inn í dal og yfir borgina. Korpan hefur fjölbreytileikann í þremur 9 holu lykkjum, útsýni til sjávar og áar sem teigir sig til Esjunnar og Móskarðs­ hnjúka, hvernig á að vera hægt að velja? Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Mér gengur svona svipað og íslensku veðráttunni, geggjuð í dag en glötuð á morgun, en með árunum hefur stöðugleikinn verið meiri hjá mér. Það eru nokkrir skemmtilegir sigrar í gegn­ um tíðina. En eftirminnilegasti sigurinn var þegar ég lærði að láta ekki illa spilaða holu hafa áhrif á næsta upp­ hafshögg og muna að golf er eitt högg og ein braut í einu. Hefurðu farið holu í höggi? Ég fór holu í höggi 6.5. 2012 á 9. á Korpunni/Sjórinn. Það var ekkert sér­ staklega hlýtt úti, lengdin var ca 100 m í pinnann sem var fyrir miðju framar­ lega, ákvað að taka eina kylfu upp ætl­ aði svo sannarlega að drífa í kuldanum. Við vorum 4 í hollinu; eiginmaðurinn, Brynjar Jóhannesson, og hjón sem við þekktum ekki. Ég sló bara asskoddi gott högg. Boltinn lenti vinstra megin við pinna og rúllar svo beint ofaní. Þetta högg man maður alltaf. Það varð allt vitlaust á teignum, enginn af okkur hafði séð holu í höggi áður. Eigin­ maðurinn þurfti að kyngja þvi að ég varð á undan honum að fara holu í höggi. Eftirminnileg atvik eða skemmti­ legar sögur? Meistaramótið 2022 var ansi eftir­ minnilegt. Ég var í 1. flokki með fgj. 17,3, við vorum ca 20 í flokknum, fgj 8-17,4 (að mig minnir) og átti þetta að vera 4 daga mót en vegna veðurs þurfti að fella niður dag tvö. Maður fer alltaf með það í huga að gera sitt besta og vera helst ekki í síðasta sætinu (þó enginn muni það nema maður sjálfur). Á lokadeginum er ég einhversstaðar í miðjunni bara sátt með það. Ég fer út á völl full tilhlökkunar að klára þessi ósköp því veðrið var bara glatað. Þegar komið er inn er alltaf stemming ég panta mér mat og bubblandi drykk sest niður með hópnum sem var kom­ inn inn og aðeins farið yfir höggin og púttin sem ekki féllu. Ég er örugglega hálfnuð með drykk og mat þegar ég fæ þær upplýsingar að ég eigi að fara í bráðabana um 3. sætið, gerði ekki al­ veg ráð fyrir því þegar ég kom inn eftir hringinn. Veðrið hafði ekkert lagast heldur versnað því ofan í rokið var komin þessi hressilega rigning. Ég og Harpa Ægisdóttir erum mættar á 10. teig (áin) í öllum fötunum okkar bæði vind og vatnsheldum og ég svo heppin að fá að slá fyrst. Get alveg verið hrein­ skilin með að spennan var mjög mikil og mig langaði svo að vinna þennan bráðabana. Vindurinn var stífur frá vinstri til hægri og þangað viltu ekki slá því þar eru vallarmörk, hvítir hælar. Eina sem ég hugsaði í upphafshögginu halda boltanum niðri, HORFA Á BOLT­ ANN og ég slæ geggjað högg á miðja braut. Harpa sem er frábær golfari og slær svo miklu lengra en ég er mætt á teig, slær hann full hátt fyrir þennan vind tekur hægri beygju og endar út fyrir vallarmörk. Harpa stendur í nokkr­ ar sekúndur, horfir á mig svo á brautina lítur svo aftur á mig, kinkar kolli og segir þetta er komið, til hamingju. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Ég er alltaf að spila með góðum golf­ urum en Ragnhildur Sigurðardóttir er besti golfarinn sem ég hef spilað með. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Ég get ekki valið neinn einn völl sem bestan, hef spilað marga góða á Spáni, Englandi og í Danmörku. Svona sem venjulegur áhugamaður í golfi er það skorið sem velur besta völlinn hverju sinn. Í næsta lífi þegar ég verð atvinnu­ maður; er nefnilega að æfa mig núna, þá mun ég svara þessu öðruvísi. Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Meðlimir mættu hugsa betur um teig­ ana sína. Það er svo litið mál að taka upp tíið sitt. Eitthvað að lokum? Já er hrikaleg glöð að hafa byrjað í golfi. Hef kynnst fullt af skemmtilegu og góðu fólki og bíð spennt eftir nýju golfári 2024. Steinunn Braga Bragadóttir: ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ!

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==