KYLFINGUR 2024

Liðakeppni GR er lokið þetta árið en keppnin hefur staðið í allt sumar. Liðakeppninni svipar til sveitakeppni og í hverjum leik keppa 6 leikmenn, þar sem tveir leika gegn tveimur í fjórleik sem við þekkjum líka sem betri bolta. Hinir fjórir leikmenn hvort liðs leika gegn hvorum öðrum í holukeppni eða tvímenning. Sextán lið léku í fjórum riðlum þar sem öll liðin léku innbyrðis. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komust áfram í átta liða úrslit. Í átta liða úrslitum mættust eftirtalin lið. Ásar gegn Kötlum Lið nr. eitt gegn Golf 110 Brassar gegn Tíunum Minkurinn gegn Möskva Þess má geta að margir leikmanna Golf 110 eru kvæntir leikmönnum Tíanna. Þar sem Golf 110 datt út í 8 liða úrslitum gátu hjónin ekki mæst í keppninni. Tíurnar komust áfram en mættu líka liði nr. eitt og þarf við sat, því lið nr. eitt sigraði og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum. Ásar og Kötlur voru með sömu hjónatengingar og fyrr nefndu liðin tvö og þar þurfti bráðabana til að skera úr um úrslit en Kötlur höfðu þar betur. Í æsispennandi úrslitaleik sem fór í bráðabana sigruði Lið nr. 1 og kláraðist leikurinn með fuglapútti sem sett var í af löngu færi. Við þökkum ÍSAM sem var styrktaraðili mótsins, en leik­ menn beggja liða fengu glæsilega golfboli frá FootJoy. FOOTJOY BIKARINN – LIÐAKEPPNI GR LIÐ NR. 1 SIGURVEGARI Í FOOTJOY-BIKARNUM BÁSAR 20 ÁRA Þann 19. júní 2024 eru 20 ár liðin frá því að Golfæfingasvæðið Básar var tekið í notkun. Æfingasvæðið hefur tekið miklum breytingum á þeim árum sem liðin eru en markmiðið, að halda úti heilsársæfingaaðstöðu fyrir kylfinga, hefur ávallt verið haft að leiðarljósi. 102 I KYLFINGUR I

RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==