KYLFINGUR 2024
I KYLFINGUR I 123 ÍSLANDSMÓTGOLFKLÚBBA 14ÁRAOGYNGRI Ágætur árangur hjá liðumGR Keppni á Íslandsmóti golfklúbba í aldurs flokknum 14 ára og yngri fór fram á Strandarvelli á Hellu dagana 26. til 28. júní. Keppt var í stúlkna og piltaflokki. Ellefu lið tóku þátt í keppni drengja 14 ára og yngri og voru leikmenn frá 12 klúbbum. Í keppni stúlkna tóku sjö lið þátt en leikmenn voru frá alls níu golfklúbbum. GR piltarnir hlutu annað sætið og stúlk urnar það þriðja. Í sumar voru leiknar fimm umferðir í Mótaröð öldunga 70 ára og eldri. Allar umferðir voru leiknar á 9 holu lykkjum Korpu. Keppt var í bæði karla- og kvennaflokki, þar sem veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og einnig voru veitt verðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Sami keppandi gat ekki unnið bæði punktakeppni og höggleik í hverju móti fyrir sig. Veitt voru verðlaun fyrir hvert mót en aðalkeppnin var um sigur á mótaröðinni þar sem 3 bestu skor hvers keppanda giltu til úrslita. Tæplega 80 keppendur tóku þátt á móta röðinni í sumar. Keppnin var jöfn og spennandi. Í höggleik án forgjafar sigraði Hans Óskar Isebarn á 136 höggum og einu höggi þar á eftir kom Friðgeir Guðnason. Í kvennaflokknum í höggleik án forgjafar sigraði Ingveldur B Jóhannesdóttir á 136 högg um en næstar á 137 höggum voru þær Kristín Ólafía Ragn arsdóttir og Anna Sigurjónsdóttir. Í punktakeppni var það Anna Sigurjónsdóttir sem sigraði á 55 punktum, í öðru sæti á 52 punktum var Sonja Þorsteins dóttir og í þriðja sæti var Margrét Eiríksdóttir á 48 punktum. Í punktakeppni karla var það Friðgeir Guðnason sem sigr aði á 54 punktum, í öðru sæti á jafnmörgum punktum var Guðmundur Stefán Jónsson og í þriðja sæti var Vignir Reynir á 52 punktum, en Ingi Þórðarson hlaut sama punktafjölda. Að loknu lokamótinu, fór fram verðlaunaafhending bæði fyrir lokamótið og mótaröðna í heild. Mótin dreifðust yfir sumarið og fór fyrsta mótið fram 14. júní, mót nr. 2 var haldið 27. júní, þriðja mótið var 19. júlí, mót nr. 4 var 9. ágúst og 5. og síðasta mótið fór fram föstu daginn 6. september. GR þakkar keppendum öllum fyrir þátttökuna í sumar og óskum sigurvegurum til hamingju með sinn árangur. MÓTARÖÐ 70 ÁRA OG ELDRI 2024 Úrslit og samantekt eftir sumarið Verðlaunahafar, konur frá vinstri: Kristín Ólafía Ragnarsdóttir, Ing veldur B. Jóhannesdóttir, Sonja Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Þ. Sig urðardóttir. Karlar: Friðgeir Guðnason, Hans Isebarn, Reynir Vignir, Guðmundur Stefán Jónsson og SigurvinÁrmannsson.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==