KYLFINGUR 2024
Haustmót Haustmót GR kvenna og TA sport var spilað laugardaginn 14. september. Leikið var punktakeppni og höggleikur. Góð skráning var í mótið enda frábært að enda golfsumarið í síðasta GR konu móti sumarsins með glæsilegu lokahófi á eftir. Úrslitin í haustmótinu í punktakeppni: 1. sæti Bryndís Elín Hauksdóttir, 43 punktar. 2. sæti Jakobína H Guðmundsdóttir, 41 punktur, betri á seinni 9. 3. sæti Rut Hreinsdóttir, 41 punktur Höggleikur Alda Harðardóttir, 83 högg Sumarmeistari GR kvenna Sumarmeistari GR kvenna var nýtt mót sem við vorum að prófa. Mótið var holukeppni með útslætti. Þær konur sem fengu þátttökurétt í sumarmeistarara GR kvenna voru þær 8 punkta hæstu semhöfðu tekið þátt í vormóti, sumarmótaröð og haustmóti. Þetta mót var síðsumar, daginn tekið að stytta og ljóst að hafa þyrfti stuttan tímaramma til að spila mótið og var það því klárað á viku. Dregið var um hvaða konur myndu mætast voru það þessar konur sem mættust á Ánni: Rut Hreinsdóttir/Íris Ægisdóttir, Kristín Halla Hannesdóttir/ Bára Ægisdóttir, Kristín Nielsen/Inga Nína Matthíasdóttir, Helga Svanlaug Bjarnadóttir/Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir. Fór svo að næst mættust á Sjónum, systurnar Íris Ægis dóttir og Bára Ægisdóttir. Bára sigraði þegar síðasta holan féll. Bergrún og Inga Nína mættust og Inga Nína tryggði sigur þegar hún vann síðustu holuna. Ljóst var því að Bára og Inga Nína myndu mætast í úrslitum í Grafarholtinu þar sem spila átti 18 holur eða þar til úrslit yrðu ljós en því miður þurfti Inga Nína að gefa leikinn svo Bára Ægisdóttir stóð uppi sem sumarmeistari GR kvenna. Hún hlaut að verðlaunum árgjaldið í GR árið 2025 sem styrkt var af Kviku banka. Svona var sumarið 2024, nóg um að vera. Kvennanefndin þakkar fyrir sig og óskar eftir nýjum konum í nefndina. grkvennanefnd@gmail.com Alda Harðardóttir, til vinstri, sigraði höggleikinn á glæsilegu skori, 83 högg. Bryndís Elín Hauksdóttir sigraði punktakeppnina á 43 punktum. Þessar komust í átta liða úrslitin og börðumst um titilinn Sumar meistari GR kvenna. Titilinn hlaut Bára Ægisdóttir. Kvennanefndin 2024. Kristín Halla, Svava, Sigurbjörg, Guðrún Íris, Aðalbjörg, Halldóra, Elsa og Auður Arna. I KYLFINGUR I 77
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==