KYLFINGUR 2024
I KYLFINGUR I 99 Opnunarmót Korpu fór fram 11. maí í fínasta veðri. Völlurinn tók vel á móti golfþyrstum kylfingum og kemur Korpan ótrúlega vel undan vetri að sögn kylfinga. Flatir með góðu rennsli, nýir malbikaðir stígar og góður leikhraði. Nú hefur Korpan verið formlega opnuð fyrir sumarið. Ræst var út frá 8:00 til 15:00 í Opnunarmótinu og tóku rúmlega 190 kylfingar þátt. Besta skor dagsins átti Tómas Eiríksson Hjaltested, spilaði á 6 höggum undir pari eða 66 höggum. Úrslit í Opnunarmóti Korpu 2024 urðu þessi: Forgjöf 0-14 Sigurbjörn Hlíðar Jakobsson 43 punktar Gunnar Þórður Jónsson 41 punktar Leifur Kristjánsson 39 punktar Forgjöf 14,1 og hærra Benedikt Aron Guðnason 40 punktar Sigurður Helgi Hlöðversson 39 punktar Gestur Jónsson 37 punktar Nándarverðlaun: 3.braut: Böðvar Bragi Pálsson 84 cm 6.braut: Helga Friðriksdóttir 19 cm 9.braut: Rut Aðalsteinsdóttir 162 cm 13.braut: Perla Sól Sigurbrandsdóttir 158 cm 17.braut: Höskuldur Ólafsson 106 cm Fyrsti ráshópur að leggja af stað. Fv.: Gestur Jónsson, Garðar Eyland, Gísli Guðni Hall og Jón Pétur Jónsson. OpnunKorpu 2024
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy NjgxMQ==