2025
stækkar stöðugt Golfheimurinn okkar Kynntu þér golfmöguleikana við Faro og Malaga
icelandair.is/vita Golfáfangastöðunum fjölgar stöðugt, enda njóta golfferðir sívaxandi vinsælda. Það kemur okkur ekki á óvart – þær sameina þessa frábæru íþrótt og ferðalög á nýjar slóðir þar sem hægt er að spila leikinn við bestu aðstæður og njóta um leið fyrsta flokks aðbúnaðar og annarrar afþreyingar utan vallar. Nýlega bættust tveir suðrænir áfangastaðir á ferðakort Icelandair, Faro í Portúgal og Malaga á Spáni. Í nágrenni beggja eru spennandi golfvellir og glæsileg hótel þar sem þú getur iðkað uppáhaldsíþróttina í sólinni.
SPIDER ZERO TORQUE
Kylfingur – 1. tbl. 2025 – Útgefandi: Golfklúbbur Reykjavíkur – Ábm.: Ómar Örn Friðriksson – Ritstjóri: Halldór B. Kristjánsson. Ritnefnd: Ómar Örn Friðriksson og Atli Þór Þorvaldsson. Ljósmyndir: Frosti Eiðsson, Grímur Kolbeinsson, GSÍ og margir fleiri. Prófarkalestur: Auðbjörg Erlingsdóttir – Hönnun og umbrot: Halldór B. Kristjánsson / Leturval slf. Forsíðumyndin: Dagbjartur Sigurbrandsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í höggleik 2025. Mynd GSÍ. Meðal efnis RAGGA KRISTINS BRAUT BLAÐ Í SÖGU GOLFS Á ÍSLANDI OG GERIR UPP ÁRIÐ 8 32 SKOSKI ÓBÓLEIKARINN DAÐI KOLBEINSSON Í VIÐTALI 36 BLÓMLEGT STARF GR-KVENNA 49 DAGBJARTUR, BÖÐVAR BRAGI OG GR SVEITIN ÍSLANDSMEISTARAR 23 25 27 UNGAR OG EFNILEGAR 68 671 KALLI JÓ MÓTARÖÐIN 74 ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ 30 46 62 67 92
6 I KYLFINGUR I Merino ull sem ekki stingur Lipur fatnaður sem hentar vel í golfið
I KYLFINGUR I 7 Fiskislóð, 101 Reykjavík / Glerártorg, 600 Akureyri Ellingsen.is
8 I KYLFINGUR I Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, braut blað í sögu golfs á Íslandi í júlí þegar hún sigraði Västerås Open mótið í Svíþjóð. Hún er fyrsti íslenski kylfingurinn sem sigrar á LET Access mótaröðinni! Mótið fór fram á Skerike Golfklubb vellinum í Svíþjóð og áttunda mót Röggu á tímabilinu. Í síðustu viku hafnaði Ragga í 2. sæti á Swedish Strokeplay Championship, hún hefur verið að spila frábært golf undanfarnar vikur og með árangri sínum í síðustu viku jafnaði hún besta árangur íslensks kylfings á LET Access mótaröðinni en eftir sigurinn í dag braut hún blað! Ragga situr í 13. sæti stigalistans fyrir þetta mót og mun því koma sér enn ofar með árangri dagsins. LET Access mótaröðin er næststerkasta mótaröðin á meðal atvinnukylfinga í Evrópu. Ragga lék best allra kylfinga á fyrsta keppnisdegi og endaði á sjö höggum undir pari eða 65 höggum. Á seinni níu þennan dag setti Ragga í fluggírinn og fékk fimm fugla og RAGGA KRISTINS SIGRAR VÄSTERÅS OPEN MÓTIÐ Á LET ACCESS!
I KYLFINGUR I 9 einn örn, pútterinn var greinilega heitur hjá Röggu þennan dag þar sem hún púttaði einungis tíu sinnum á seinni níu. Annan hringinn lék Ragga á tveimur höggum undir pari, seinni hluta hringsins lék Ragga frábært golf og fékk þrjá fugla á síðustu fjórum holunum sem skilaði henni 2. sætið fyrir lokahringinn í dag. Þriðja hringinn lék Ragga á 73 höggum, einum yfir pari. Eftir tvo fugla á fyrstu holunum í lokahringnum kom tvöfaldur skolli á sjöundu holu. En 35 högg á fyrri níu holunum dugðu til að vinna upp forystu Amalie Leth-Nissen, sem leiddi mótið fyrir hringinn. Ekkert mátti skilja þær stöllur að á seinni níu holunum, og voru þær jafnar að sautján holum liðnum. Á átjándu holunni fékk Ragga par, á meðan Amalie fékk skolla. Stáltaugar á síðustu holunni sigldu sigrinum heim, og Ragnhildur brýtur blað í sögu golfs á Íslandi. Við óskum Ragnhildi innilega til hamingju með sigurinn! – Sjá Ragga gerir upp árið 2025 á bls. 32-33.
Sjóvá | sjova.is | 440 2000 | sjova@sjova.is Á hverju ári fá þúsundir tjónlausra viðskiptavina Sjóvá Stofnendurgreiðslu. Þannig hefur það verið í yfir 30 ár. Tryggjum fleiri gæðastundir
I KYLFINGUR I 11 ALMENN ÁNÆGJA MEÐ STÖRF STJÓRNAR AÐALFUNDUR GR Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn á Korpúlfsstöðum þriðjudaginn 2. desember og voru um 175 félagsmenn sem mættu á fundinn. Formaður félagsins, Gísli Guðni Hall, flutti ítarlega skýrslu um störf stjórnar á árinu. Harpa Ægisdóttir fjármálastjóri, kynnti ársreikning félagsins og fór yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Gísli Guðni bauð sig fram til áframhaldandi formennsku og hefur nú sitt fimmta ár sem sitjandi formaður. Sitjandi stjórnarmenn í aðalstjórn, kosin á aðalfundi 2024 eru Brynjar Jóhannesson, Kristín Eysteinsdóttir og Ólafur William Hand. Kosið var þrjú sæti til tveggja ára í aðalstjórn á nýliðnum aðalfundi, sjálfkjörin var Elín Sveinsdóttir. Guðmundur Arason fékk áframhaldandi kosningu til tveggja ára. Þá var kosinn Hrannar M. Hallkelsson, en hann var í varastjórn. Í varastjórn til eins ár voru kjörin Þórey Jónsdóttir, Arnór Ingi Finnbjörnsson Jón Karlsson, en sá síðastnefndi kemur nýr inn. Stjórn og varastjórn Golfklúbbs Reykjavíkur er því fullskipuð fyrir komandi rekstrarár. Margeir Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér, en hann hefur setið í stjórn frá árinu 2014. Gísli þakkaði honum fyrir góð störf, en fáir hafa komið jafn mikið við sögu í rekstri og stjórn klúbbsins á þessari öld. Hann réði sig sem vallarstjóri í Grafarholti 1995 og síðan framkvæmdastjóri GR á árunum 1998 til 2008. Hann var kosinn í stjórn GR 2014 og hefur setið þar til nú. Gísli þakkaði honum fyrir ómetanleg störf og stuðning. Rekstur klúbbsins gekk vel á starfsárinu 2024–2025 og námu tekjur alls 878 milljónum króna og rekstrarafgangur 76,4 milljónir. Heildareignir nema 1.839 milljónum króna og eiginGísli Guðni Hall, formaður GR, flytur skýrslu stjórnar.
GÓÐ ÁKVÖRÐUN
I KYLFINGUR I 13 fjárstaðan sem og lausafjárstaðan er sterk. Á rekstrarárinu störfuðu 18 heilsársstarfsmenn hjá klúbbnum og að auki 75 sumarstarfsmenn. Að öðru leyti vísar stjórn klúbbsins til meðfylgjandi ársreiknings um rekstur og fjárhagsstöðu. Golfklúbbur Reykjavíkur annast rekstur 18 holu golfvallar og 6 holu æfingavallar í Grafarholti ásamt rekstri 36 holu golfvallar (4×9, þ.e. Sjórinn, Áin, Landið og Thorsvöllur) á Korpúlfsstöðum. Enn fremur rekur klúbburinn æfingaaðstöðu Bása í Grafarholti auk inniæfinga- og félagsaðstöðu á Korpúlfsstöðum. Eins og undanfarin ár voru miklar framkvæmdir á vallarsvæðum félagsins á starfsárinu. Í Grafarholti var það lokafrágangur á nýrri 1. flöt, uppbygging á nýrri 3. flöt og uppbygging á nýju teigum á 4. braut. Uppbygging á nýrri 11. flöt og hafist var handa við uppbyggingu og sléttun og endurmótun 1. brautar. Það á eftir að tyrfa brautina en framkvæmdinni er lokið að öðru leyti. Samhliða þessum framkvæmdum var komið upp nýju salerni við 6. teig og í vetur mun öðru slíku verða komið fyrir í rjóðrinu á milli 13. og 15. brautar. Stærstu framkvæmdir á Korpu á liðnu starfsári var áframhaldandi malbikun stíga á Ánni og Landinu ásamt frágangi við stígagerð, hellulögn og uppstigum við teiga. Þessi verkefni hafa verið samhangandi. Í vetur hefst svo lokafrágangur á þeim hluta sem eftir stendur við 26. og 27. braut, sem er lítið í samanburði við það sem nú er lokið. Byggðir voru upp fimm nýir teigar, á 3., 5., 8. og 23. braut. Ný púttflöt við Korpu sem hefur verið í uppbyggingu síðastliðin tvö ár var formlega tekin í notkun í upphafi tímabilsins. Sama á við um Korpu og í Grafarholti að ný salerni voru tekin í notkun. Á Korpu eru þau staðsett á 6. teig og við 15. og 23. teig. Áframhaldandi vinna við að koma upp sláttuþjónum hélt áfram og er þeirri vinnu lokið fyrir Landið. Fjárhagsáætlun GR 2026 var samþykkt. Félagsgjöld 2026 verða: Félagsmenn 19-26 ára, kr. 87.900 Félagsmenn 27-74 ára, kr. 175.700 Félagsmenn 75 og eldri, kr. 150.600 Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 113.000 *enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár samfellt Leiknir hringir á árinu voru 107.897 samanborið við 93.309 á árinu á undan. Félagsmenn léku 5.410 hringi á vinavöllum félagsins og vinavallasamningar því vel nýttir í ár. TagMarshal er nýtt kerfi sem tekið var í notkun fyrir tveimur árum. Stykki með staðsetningarbúnaði, sem kylfingar taka með sér út á völl, verða eftirleiðis nefnd spori. Hugmyndin er fengin frá góðum félagsmanni, Jóni Hermanni Karlssyni, en nokkrar fleiri góðar höfðu komið fram. Allt frá stofnun klúbbsins hefur mikið verið lagt upp úr að finna nýyrði fyrir orð í ensku golfmáli og þeirri hefð viljum við viðhalda. Tagmarshal kerfið hefur annars reynst okkur afar vel, það gefur starfsmönnum og eftirlitsmönnum upplýsingar um stöðu leiktíma á völlum félagsins. Meðal leikhraði á Korpu í ár var 4:10.47 og í Grafarholti var meðal leikhraði 4:13:17 – miðast þessir tímar við 18 holu leik. Kynjahlutfall í klúbbnum er 35% konur á móti 65% karla og stendur í stað á milli ára. Á komandi ári er fyrirhugað að halda áfram framkvæmdum. Helstu framkvæmdir í Grafarholti verða – opnun nýrrar 1. brautar, uppbygging á nýjum teigum og glompum á 3. braut, opnun nýrrar 3. flatar síðla sumars, uppbygging á nýrri 10. flöt ásamt nýjum teigum fyrir 11. braut, sem farið verður í næstkomandi haust. Á Korpúlfsstöðum verður Íslandsmótið 2026 haldið. Fyrir mótið verður allri stígagerð og frágangi þeim tengdum lokið. Nokkrir nýir bakteigar hafa verið gerðir, í því augnamiði að gera völlinn að enn meira krefjandi keppnisvelli. Gengið verður frá nýju útiplássi og þrifaðstöðu framan við skála. Stefnt að því að hefja uppbyggingu á nýrri vélageymslu/ þjónustuhúsi á Korpu árið 2026, en það er háð skilyrðum um leyfi og ásættanlega fjármögnun. Í Básum er fyrirhugað að gera nýtt þjónusturými þar sem komið er inn í Bása og klæða skilrúm á 1. og 2. hæð til að fyrirbyggja slysahættu. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Árna Tómassyni og Guðmundi Frímannssyni, endurskoðendum, fyrir sína vinnu og kjörnefnd fyrir sitt starf. Sérstakar þakkir færum við Ólafi Arinbirni Sigurðssyni fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku. Stjórn, framkvæmdastjóri og starfsfólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir gott starfsár. Harpa Ægisdóttir, gjaldkeri klúbbsins, fór yfir reikninga félagsins að venju. Ólafur Arinbjörn Sigurðsson var einróma kosinn fundarstjóri.
14 I KYLFINGUR I Grafarholtsvöllur Grafarholtsvöllurinn kom nokkuð vel undan vetri, betur en í meðalári, og við vorum ánægð með ástand hans í allt sumar. Það var tímabil í júní sem var okkur aðeins erfitt, þar sem vallarstjórar þurftu að vinna í flötunum. Það þurfti að þétta vöxtinn og það sem telur nokkuð mikið í þessu – að vinna í því að fá réttu grastegundirnar til að vaxa frekar en þær sem við viljum síður. Þetta er þolinmæðisvinna og er unnin út frá langtímamarkmiðum um gras og þá á kostnað þess dags og skammtímalausna. Flatirnar verða verri í einhverja daga, en betri og harðgerðari einhverjum vikum seinna, auk þess sem líkur á góðu næsta ári verða meiri. Þetta gildir einnig um slátt flata. Það er skemmtilegt að pútta á flötum þar sem grasið er slegið þétt niður, rúllið verður betra, en ef farið er of geyst í að slá flatirnar niður getur það nært óæskilegar grastegundir á kostnað þeirra sem við viljum ná upp. Þetta er því jafnvægislist og geta verið sjónarmið í báðar áttir. Það er sjálfsagt ekki hægt að ætlast til að almennir kylfingar átti sig á þessu og ekki óeðlilegt að pirringur skapist, við viljum góðar og hraðar flatir – alla daga! Ég held að á síðustu tveimur árum sérstaklega höfum við dregið þann lærdóm að við þurfum að bæta upplýsingagjöf um þessi efni og hvað er að gerast á völlunum okkar á hverjum tíma, og þá held ég að skilningurinn verði meiri, þó við gerum sennilega aldrei alla ánægða og það alltaf. Við erum með frábæra vallarstjóra á báðum völlum, með mikla reynslu og þekkingu. Þegar vellirnir koma ekki vel undan er það ekki vegna þess að þeim hefur farið aftur frá því árinu á undan, skýringarnar er yfirleitt allavega að finna annars staðar og þá oftar en ekki í náttúrunni, hún hefur þann eiginleika að hegða sér með mjög svo breytilegum hætti. Við sáum ýkt dæmi um þetta á Oddfellow-vellinum í sumar, þar sem flestar flatirnar komu nánast steindauðar undan vetri og tók nánast allt sumarið hjá þeim að vinna þær upp. Þetta voru sömu góðu vallarstjórarnir við stjórnvölinn hjá þeim og í fyrra og hitteðfyrra, þegar flatirnar hjá þeim voru í hæstu hæðum. Hitt sem ég vildi segja um Grafarholtið eru framkvæmdirnar. Við höfum tekið í notkun nýja 17. og 18. braut. Næsta vor tökum við í notkun nýja 1. braut, og ég vonast til að um mitt sumar eða seinni part getum við opnað inn á nýja 3. braut. Samtímis opnum við þá inn á nýja teiga á 4. braut sem gera þá holu mun betri en hún er í dag, við erum búin að slétta brautina nú þegar, eins og þið vitið. Þetta verður Úr ræðu formanns GR, Gísla Guðna Hall, á aðalfundi GR: VELLIRNIR OKKAR VERÐI ÁVALLT Í FREMSTU RÖÐ
I KYLFINGUR I 15 risa áfangi. Það er í planinu okkar að vinna nýja 10. flöt á þessu ári, ekki ósvipað og þá 11. í fyrra, nema að sú 10. er heldur einfaldari í gerðinni. Næsta vetur klárum við svo nýja teiga á 11. braut þannig að við getum opnað nýja 11. braut sumarið 2027. Þá verður stutt í opnun á nýrri 10. braut, og þá geri ég einnig ráð fyrir að hylli í nýja 2. braut, það verður tiltölulega einfalt að gera nýja flöt þar er nýir teigar á þeirri þriðju hafa verið gerðir. Við förum að njóta meiri ávaxta: Bara núna næsta sumar verða nýuppgerðar brautir orðnar fimm, og árunum 2027 og 2028 líklega þrjár til viðbótar. Þetta gera 8 holur, þannig að við verðum nálægt því að vera hálfnuð með það verkefni að endurbæta allan völlinn. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að fylgjast með, og sjá hvað við erum að fá, m.a. í gæðum flata og brauta. Einn lærdómurinn síðustu ár er að leyfa flötunum að standa nógu lengi eftir sáningu, a.m.k. 12 mánuði, áður en hleypt er inn á þær. Núna seinni part sumars var nýja fyrsta flötin orðin eins og teppi, ekki ósvipað æfingaflötinni nýju á Korpunni. Við viljum halda áfram með þetta verkefni, og ekki slá slöku við, við viljum að þið klúbbmeðlimir fáið að njóta ávaxtanna fyrr en seinna. Hvert ár, og það fyrir hverja holu, skiptir okkur miklu máli. Svo getum við alltaf tekið stöðu og ákveðið hvort við gefum í, eða hvort við förum hægar í sakirnar. Korpúlfsstaðavöllur Ef ég vík þá að Korpúlfsstaðavellinum, þá voru vonbrigði hvernig hann kom undan vetri, og þá sérstaklega flatir. Þær voru hægar til og mikið og tímafrekt verkefni að fá þær í gott stand. Júnímánuður var mjög erfiður. Ég er búinn að tala um flatir, það sem ég sagði um þær á eins við á Korpunni. Það voru nokkrir krísufundir sem við áttum hérna fyrri part sumars, sjálfsagt ekki ósvipað og hjá fótboltaliði sem hefur tapað nokkrum leikjum í röð. Þetta er álag og pressa sem við, og sérstaklega vallastjórar og starfsmenn, finna. En þeir vita líka að þetta er hluti af starfinu þeirra og þeir finna stuðninginn líka. Korpúlfsstaðavöllurinn er miklu yngri völlur heldur en Grafarholtið, og ekki orðin sama þörf á endurbótum eins og þar. Það er þó þannig að sumir hlutar í vellinum eru komnir á tíma. Sérstaklega glompur og nokkrar flatir eru okkur alltaf erfiðar. Það er margt sem okkur langar til að gera, en við getum ekki gert allt og alls ekki á sama tíma og í Grafarholtinu. Við höfum þó ekki viljað skilja völlinn útundan og viljum bæta gæðin eins og við mögulega getum. Við tókum stórt skref er við ákváðum að malbika alla stíga vallarins. Það var ristastórt og fjárfrekt verkefni, en er nú að mestu leyti búið, þar með talinn frágangur, það eru smá leifar eftir. Við erum að borga þriðju stóru greiðsluna á þessu ári og það sem þá stendur eftir er tiltölulega lítið, nær 10–12 millljónum samanborið við greiðslur upp á 35–37 milljónir í þrjú ár. Þetta verkefni hefur gengið vel og lyft vellinum á hærra plan. Við höfum einnig gert átak í að byggja upp nýja teiga, sérstaklega framteiga, sem einfaldlega þurfti til að völlurinn væri ekki of erfiður á framteigum og tefði jafnvel leik, og svo
16 I KYLFINGUR I bakteiga, til að viðhalda vellinum sem keppnisvelli í fullri lengd. Bestu kylfingarnir slá sífellt lengra, og við höfum mætt þeirri þróun eins og velflestir heldri klúbbar víðs vegar um heim. Við höfum einnig lagað og stækkað 57 teiga sem voru hvað slappastir. Við höfum því reynt að sinna Korpunni líka. Við lítum svo á að Korpan og Grafarholtið séu okkur jafn mikilvægir vellir, þeir eru báðir í röð bestu valla landsins og þannig skal það alltaf vera. Thorsvöllur Mér finnst ég verða að taka Thorsvöll sérstaklega í þessari umræðu. Eins og við vitum er hann styttri völlur og hefur fyrst og fremst verið ætlaður börnum, unglingum, byrjendum og svo eldri kylfingum, eða hverjum þeim sem telur völlinn henta sér. En þessi völlur hefur einhvern veginn setið eftir og áherslan verið á stóru vellina og gæði þeirra. Það var á verkefnalistanum hjá okkur á liðnu starfsári að slétta ósléttustu braut vallarins og jafnvel tvær, en starfsmenn komust ekki í það. Það verður líka að viðurkennast, að sennilega er betra að hugsa þennan völl upp á nýtt og gera fyrir hann masterplan til að vinna eftir, frekar en að ákveða eitthvað svona tilfallandi hverju sinni. Síðasta sumar gerðum við reyndar mjög veglegan fyrsta teig á vellinum og notuðum í hann hybrid gras, sem sagt blöndu af gervigrasi og alvöru grasi, sem við vonumt til að geti verið lausn fyrir okkur í teigagerð á komandi árum, t.d. þannig að við setjum svoleiðis gras á hluta teiga til að nota á viðkvæmustu tímum. Þetta er háð því að tilraunin gangi upp, en hún lofar góðu og ég hvet ykkur bara til að fara út og skoða, þegar þið eigið færi á. En eins og ég segi, við stöndum í skuld við þennan völl, og á síðasta ári gerðum við ekki það sem við ætluðum okkur. Áætlun okkar núna miðast við að leggja aukna áherslu á að ástand Thorsvallar verði betra á næsta ári, allur sláttur verði skoðaður, merkingar gerðar betri og annað sem lýtur að snyrtilegheitum og daglegri umhirðu. Við eigum að geta betur. Láta svo búa til gott framtíðarplan fyrir þennan völl og byggja hann upp og þróa samkvæmt því plani. Þetta er það sem við teljum best í stöðunni núna, og við í stjórninni vitum að við erum berskjölduð gagnvart gagnrýni á að hafa ekki gert meira. Það breytir því ekki að við erum meðvituð um mikilvægi Thorsvallar, raunar aukið mikilvægi, og við verðum einfaldlega að gera betur þarna hér eftir.
18 I KYLFINGUR I
I KYLFINGUR I 19 Við erum betri saman Náðu þínum markmiðum með Einkabankaþjónustu Byggjum upp öflugt eignasafn
limtrevirnet.is HVAÐ VILT ÞÚ BYGGJA? Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 | Netfang: byggingar@limtrevirnet.is Söluskrifstofur: Lynghálsi 2, 110 Reykjavík | Borgarbraut 74, 310 Borgarnesi 2024 Óðal 240 m² — 18.800.000 kr. m.vsk. Setur 160 m² — 12.800.000 kr. m.vsk. Breidd 12,0m Lengd 20,0m Vegghæð 4,15m Mænishæð 6,33m Þakhalli 20° 1 x Iðnaðarhurð 4,0x4,0m 2 x Gönguhurðir 2 x Gluggar Breidd 10,0m Lengd 16,0m Vegghæð 3,15m Mænishæð 4,97m Þakhalli 20° 1 x Iðnaðarhurð 3,5 x 3,25m 2 x Gönguhurðir 2 x Gluggar HAFÐU SAMBAND Hagkvæmar byggingar með burðarvirki úr límtré og veggi og þak úr steinullareiningum. Auðveld uppsetning og áratuga reynsla við íslenskar aðstæður. Úrval lita á þak og veggi. Aðaluppdrættir og teikningar af sökkli, frágangi á einingum og burðarvirki fylgja. Festingar og efni til uppsetningar innifalið Íslensk framleiðsla
ÁSGERÐUR SVERRISDÓTTIR F. 1. MARS 1962 – D. 13. JÚLÍ 2025 Ásgerður Sverrisdóttir, læknir, lést 13. júlí sl. Golfklúbbur Reykjavíkur kveður eftirminnilega konu og einstakan afreksmann. Ásgerður var góður fulltrúi alls þess sem klúbburinn okkar stendur fyrir. Í erfiðu starfi var hún vel metin og umtöluð fyrir vandvirkni og hlýju. Hún var glæsileg á golfvellinum og þar birtist keppnisskapið og viljastyrkurinn. Hún uppskar tvo Íslandsmeistaratitla í kvennaflokki, árin 1983 og 1984, og var árum saman í íslenska golflandsliðinu. Þá vann hún marga titla innan GR auk titla í sveitakeppnum. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Ásgerði fyrir hennar þátt í að ryðja kvennagolfinu braut og vottar eiginmanni hennar og fjölskyldu samúð.
Fyrir Ísland!
I KYLFINGUR I 23 Dagbjartur Sigurbrandsson, GR og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, eru Íslandsmeistarar 2025. Þetta er fyrsti titill Dagbjarts, en sá fjórði hjá Guðrúnu. Mikil spenna var í bæði karla- og kvennaflokki. Úrslitin réðust á lokaholunni hjá körlunum, en leika þurfti umspil til að fá sigurvegara í kvennaflokkinn. Fyrir lokahringinn var Dagbjartur tveimur höggum frá efsta sætinu. Axel Bóasson hafði leikið frábærlega á heimavelli og haldið forystu sinni frá fyrsta degi. Lokahringurinn Dagbjartur setti tóninn strax á fyrstu holu og fékk þar magnaðan örn og var kominn 3 undir eftir 7 holur. Það var því ljóst að mikið einvígi myndi fara fram á Hvaleyrarvelli. Dagbjartur og Axel skiptust á að leiða mótið. Aron Snær Júlíusson blandaði sér einnig í baráttuna með frábærri spilamennsku á fyrri níu holunum. Dagbjartur setti niður gott pútt á 16. og ennþá betra pútt á 17. holunni eftir mjög slakt innáhögg. Þegar á síðustu holuna var komið leiddi Dagbjartur með einu höggi. Bæði hann og Axel áttu góðan séns á fugli, en Axel þó nær. Eftir að Dagbjartur missti pútt sitt fyrir fugli átti Axel möguleika á því að komast í umspil. Púttið geigaði og Dagbjartur Íslandsmeistari karla í golfi 2025. Dagbjartur segist hafa æft mikið og vel á undanförnum mánuðum og árum og stefnir á atvinnumennsku í íþróttinni. Hann ætlar á úrtökumót í haust og draumurinn er að komast á einhverjar af stærstu mótaröðunum. Lokastaðan 1. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR 283 högg (67-71-73-72) (-5) 2. Axel Bóasson, GK 284 högg (67-70-72-75) (-4) 3. Aron Snær Júlíusson, GKG 286 högg (72-72-69-73) (-2) 3. Veigar Heiðarsson, GA 286 högg (69-73-74-70) (-2) Frábæru móti var þar með lokið. Óskum öllum keppendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og Golfklúbbnum Keili til hamingju með afrekið – sjáumst aftur að ári! Dagbjartur Sigurbrandsson Íslandsmeistari í golfi 2025 Íslandsmótinu í golfi lauk 10. ágúst á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili
9% Næsti samkeppnisaðili 72% #1 í fjölda leikmanna 2025 Source: Darrell Survey, Sports Marketing Surveys Inc. Counts taken through June 29, 2025. Algjört traust Titleist er vinsælasti golfboltinn, langflestir kylfingar á öllum stóru atvinnumannamótaröðum heims treysta Titleist fyrir sínum leik. 13% 67% #1 í fjölda sigra 2025 Næsti samkeppnisaðili 24 I KYLFINGUR I
I KYLFINGUR I 25 Böðvar Bragi sigraði Aron Snæ Júlíusson frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, í úrslitaleiknum sem fram fór á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Þetta er í fyrsta skiptið sem Böðvar sigrar mótið, en hann lék frábært golf í mótinu. Tómas Eiríksson Hjaltested varð þriðji, en hann sigraði Arnar Daða Svavarsson frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, 2/1 í leiknum um bronsverðlaunin. Úrslitaleikurinn fór hratt af stað fyrir Böðvar Braga. Eftir fugla á holum 2, 3 og 5 var hann kominn þrjár holur upp. Aron fékk fugl á sjöundu holu, og báðir fengu þeir svo fugl á þeirri áttundu. Böðvar því fjóra undir pari eftir átta holur, en einungis tvær holur upp. Fimmti fugl Böðvars kom á níundu holu, og hann kom því í gegn á 30 höggum og þrjár holur upp. Aron reyndi við flöt á 10. holu en missti driveið út til hægri. Staðan því orðin mjög góð fyrir Böðvar, sem sigraði holuna. Tveir skollar, á holum 11 og 15 gerðu leikinn örlítið spennandi, en þrír fuglar Böðvars á holum 12, 13 og 16 gerðu útslagið, og var sigurinn í höfn á 16. flötinni eftir frábært fuglapútt Böðvars. Leið Böðvars í úrslitin má með sanni segja að hafi verið ótrúleg. Hann sýndi mikinn karakter í sigrum sínum, fór í bráðabana um að komast inn í holukeppnina og fór lengst 23 holur í útsláttarkeppninni. Mótið hófst á 36 holu höggleik á laugardaginn, 21. júní, þar sem Böðvar endaði jafn fjórum öðrum kylfingum í 13. sæti. Einungis 16 kylfingar komust áfram, þannig þeir þurftu fimm að leika bráðabana um hverjir færu áfram í útsláttarkeppnina. Böðvar fékk fugl á fyrstu holu bráðabanans og tryggði sig beint áfram. Í 16 manna úrslitunum mætti hann Veigari Heiðarssyni, sem var líklega leikur mótsins. Veigar lék frábærlega, og var sjö undir pari og þrjár holur upp eftir þrettán. Eftir það fékk Böðvar þrjá fugla í röð, jafnaði leikinn og kom sér í bráðabana. Bráðabaninn entist í fimm holur. Eftir fjögur pör frá báðum kylfingum fékk Veigar fugl. Það dugði ekki til, þar sem Böðvar fékk ótrúlegan örn og tryggði sér sæti í 8 manna úrslitunum. Í 8-manna úrslitum lék Böðvar við klúbbfélaga sinn Andra Þór. Leikur Böðvars og Andra var sá síðasti í umferðinni, þar sem Böðvar tók sinn tíma í að sigra leik sinn í 16 manna úrslitunum. Leikurinn var jafn allan tímann og voru þeir báðir í forystu á tímabili. Sjö fuglar Böðvars reyndust lykillinn að sigrinum, en leiknum lauk á 18. holu, 1/0. Í undanúrslitum mættust klúbbfélagarnir Böðvar Bragi og Tómas Hjaltested. Tómas hafði leikið frábærlega í mótinu og gerði sig líklegan að sækja titilinn í mótinu. Böðvar hafði önnur áform, lék hringinn fimm undir pari og sigraði 7/5, sem var stærsti sigur mótsins. Hann kom því heitur inn í úrslitaleikinn, þar sem hann hélt góðri spilamennsku sinni áfram. Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Böðvari Braga innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn og Tómasi Hjaltested með þriðja sætið. Áfram GR! Böðvar Bragi Pálsson er Íslandsmeistari í holukeppni karla 2025
Kæru félagar. Uppúr miðjum nóvember tilkynnti stjórn GR að frá og með opnun golfvalla GR vorið 2027 verði notkun golfbíla í eigu einstaklinga ekki heimiluð á völlum klúbbsins. Í tilkynningunni kom fram að fyrir ákvörðuninni séu ýmsar ástæður, m.a. spurningar um pláss, bílastæði, umhverfisleg rök og síðast en ekki síst stjórnun og aðgangsstýring á völlunum. Allt eru þetta að mati stjórnar góð og gild rök og óumflýjanlegt að bregðast við. Því lengur sem það er dregið, því erfiðari verði ákvörðunin. Tilkynningin hefur vakið viðbrögð og þá sérstaklega meðal félagsmanna sem eiga golfbíla nú þegar. Klúbburinn vill að sjálfsögðu vinna með félagsmönnum. Að þessu öllu athuguðu hefur GR ákveðið að lengja fyrirvarann til vorsins 2028 í stað 2027. Því til viðbótar vill klúbburinn taka upp samtal við núverandi bílaeigendur um að koma til móts við þá, með tilliti til hagsmuna beggja. Meðal þess sem klúbburinn vill athuga er möguleiki á að koma upp stjórnbúnaði í einkabílunum, bílar standist skoðun og eigendur beri kostnað er því fylgir. Eigendur eru beðnir um að gefa sig nú þegar fram við skrifstofu klúbbsins með tölvupósti gr@grgolf.is, þannig að náð verði utan um allan hópinn og frekara samtal geti farið fram. Í ljósi þessarar ákvörðunar ráðum við félögum í GR eindregið frá því að fjárfesta hér eftir í einkabílum til notkunar á völlum GR. Kær kveðja, stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur Nánari skýringar: Aðlögunartímabil er lengt samkvæmt framansögðu. Verði knýjandi rök til enn frekari aðlögunar, t.d. ef tafir verða á undirbúningi, aðstöðu, bílakosti eða þjónustu, verður sjálfsagt að lengja tímabilið enn frekar þar til klúbburinn getur staðið við það sem lagt er upp með. Markmiðið er að vernda vellina og bæta upplifun allra félagsmanna. Ákvörðunin er fyrst og fremst tekin út frá þörfum vallanna og þar með félagsmanna til lengri tíma. Einkabílar eru mjög mismunandi að þyngd, dekkjum, fjöðrun og búnaði. Þetta veldur ójöfnu álagi á brautir og önnur svæði sem rýrir gæði leiksins og eykur viðhaldskostnað sem bitnar á okkur félagsmönnum. Við gerum miklar kröfur til góðrar umgengni og snyrtimennsku. Ákvörðun um golfbíla er mikilvægur liður í að verða við þessum kröfum. Með samræmdum bílakosti getum við: • stýrt umferð með GPS • varið viðkvæm svæði • tryggt öryggi • haldið viðhaldskostnaði í hófi. Það eru of margir dagar þar sem við höfum þurft að loka völlunum fyrir bílaumferð vegna bleytu. Við gerum ráð fyrir að geta fækkað þessum dögum með samræmdum bílakosti. Ætlunin er að mæta enn betur þörfum þeirra sem þurfa bíl til að geta spilað. Það er grundvallaratriði að þeir sem treysta á bíl vegna heilsu, hreyfingar eða líkamlegra aðstæðna geti áfram spilað golf við góðar og öruggar aðstæður. Klúbbnum er umhugað að veita þessa þjónustu. Næstu tvö ár verða nýtt til að: • halda áfram að uppfæra bílakostinn og geymsluaðstöðu • ræða við félaga sem hafa sérstakar þarfir svo unnt sé að mæta þeim. Geta ber þess að klúbburinn hefur boðið félagsmönnum, sem þurfa golfbíl reglulega, upp á golfbíla án fjöldatakmarkana gegn greiðslu árlegs gjalds, sem hefur verið mjög hóflegt. Stefna klúbbsins er að gjald fyrir golfbíl sé í hófi, standi undir raunkostnaði en ekkert umfram það. Ákvörðunin nú er ekki til að útiloka neinn. Flestir stórir golfklúbbar erlendis hafa þegar tekið svona ákvörðun með góðum árangri. Án svona ákvörðunar er fyrirsjáanlegt að einkabílum fjölgi mikið á næstu árum, sem myndi gera ákvörðunina sem nú er tekin enn erfiðari. Kær kveðja, stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur. TILKYNNING FRÁ STJÓRN GOLFKLÚBBS REYKJAVÍKUR 26 I KYLFINGUR I
I KYLFINGUR I 27 Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fór fram á Leirdalsvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar dagana 24.-26. júlí 2025. Heimalið GKG mætti GR í úrslitum mótsins. Bæði lið léku frábært golf í mótinu, en GR stóð uppi sem sigurvegari eftir 3-2 sigur í úrslitum. Þetta er í 26. skipti sem GR sigrar í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba. Alls kepptu átta lið um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2025. Í B-riðli var hart barist um sæti í undanúrslitum. Golfklúbbur Reykjavíkur vann alla sína leiki í spennandi viðureignum. GR sigraði GA í seinni undanúrslitaleiknum, 3.5-1.5 Úrslitaleikurinn Sveitir GKG og GR mættust í úrslitaleiknum sem var gríðarlega spennandi. Leikurinn spilaðist jafn frá upphafi, og lengi vel stefndi í að fyrri fjórmennings leikurinn myndi skera úr um sigurvegara mótsins. Þar léku Dagbjartur Sigurbrandsson og Jóhann Frank Halldórsson saman fyrir sveit GR og Róbert Leó Arnórsson og Kristófer Orri Þórðarson fyrir GKG. Dagbjartur og Jóhann leiddu með tveimur holum þegar fjórar voru eftir. Kristófer og Róbert náðu að minnka muninn, en það reyndist ekki nóg. GR sigraði leikinn 1/0. Elvar Már og Sigurður Bjarki höfðu tapað sínum fjórmenningi, þannig að staðan var jöfn fyrir tvímenningsleikina. Í fyrsta leiknum mættust Tómas og Aron Snær og hafði Tómas betur 2/1. Hákon Örn mætti Gunnari Þór og sigraði Hákon nokkuð örugglega 4/3 og 3 vinningar komnir í hús og sigurinn í höfn. Jóhannes tapaði síðan fyrir Hlyni Bergssyni 4/2. GR sigraði því GKG með þremur vinningum gegn tveimur og eru því Íslandsmeistarar golfklúbba 2025 Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast allra klúbba eða 26 sinnum eins og áður sagði. Árið 2025 var sannkallað sigurár hjá afreksmönnum GR í karlaflokki. Ásamt því að verða Íslandsmeistari golfklúbba á GR Íslandsmestara í holukeppni og höggleik 2025. Sigurlið GR. Fv.: Dagbjartur Sigurbrandsson, Böðvar Bragi Pálsson, Jóhann Frank Halldórsson, Elvar Már Kristinsson, Tómas Eiríksson Hjaltested, Sigurður Bjarki Blumenstein, Hákon Örn Magnússon, Jóhannes Guðmundsson, Gísli Guðni Hall formaður GR og liðsstjóri og Birkir Páll Reynisson aðstoðarliðsstjóri. GR ÍSLANDSMEISTARI GOLFKLÚBBA 2025
Við tryggjum hraða tjónaþjónustu Þú tryggir frammistöðu sem seint gleymist Algeng tjón má oftast afgreiða á skjótan og skilvirkan hátt. Í sumum tilvikum líða meira að segja aðeins nokkrar mínútur frá því að tjón er tilkynnt þar til bætur fást greiddar. Tjón á heyrnartólum, símum og gleraugum eru dæmi um slík tilfelli – enda hlutir sem óþægilegt er að vera án í lengri tíma.
30 I KYLFINGUR I Herdís Jónsdóttir: ÞANNIG VAR NÚ ÞAÐ! Hvenær varðstu félagi í GR? Sumarið 2006 og fljótlega eftir það var mér boðið að stofna kvennahópinn Vippurnar með góðum konum sem ég er enn að spila með alla fimmtudaga. Af hverju varð golf fyrir valinu? Ég sá auglýsingu um golfnámskeið fyrir konur þar sem kylfur voru lánaðar á staðnum, og ákvað að skella mér og síðan var ekki aftur snúið. Nokkrum árum seinna ákvað maðurinn minn að elta mig í golfið því alltaf þegar færi gafst var ég farin í golf. Síðustu árin höfum við hjónin verið í sérlega skemmtilegum hjónahóp, Kollurnar, sem spilar saman og hittist reglulega. Hver er forgjöfin í dag? 17,6 Korpan eða Grafarholt? Ég spila báða vellina nokkuð jafnt og get eiginlega ekki gert uppá milli því mér finnst þeir vera svo ólíkir. Korpan hefur svo mikinn sjarma á fallegum degi sama hvaða leggur sem er spilaður. Grænn gróður, fuglalíf, sjórinn, selir, áin og tengslin við náttúruna finnst mér vera dásamlegt. Þegar maður kemur í Holtið, fær maður aðra upplifun, maður er kominn á stóran völl með mikla víðáttu sem er líka svo skemmtilegt – Svo engan veginn er hægt að velja á milli. Hvernig hefur þér gengið, einhverjir eftirminnilegir sigrar? Mér hefur bara gengið ágætlega í gegnum árin en þessi blessaða forgjöf rokkar eins og lífið, upp og niður og lægst hef ég náð 14,4. Í dag finnst mér mikilvægast að njóta dagsins og spila mitt golf og ef það gengur vel, þá gleðst maður, og ef það gengur illa, þá gleðst maður yfir þeim forréttinum að geta spilað golf og lætur ekki skorið stýra því. Ég var mjög upptekin af því á árum áður að reyna að gera allt rétt í sveiflunni, en er orðin afslappaðri með það í dag. Ég hef náð að vinna Meistaramót GR fjórum sinnum, árin 2019 og 2021 í 2. flokk kvenna og árin 2022 og 2024 50 ára+ forgjöf 16,5-26,4. Eftirminnileg atvik eða skemmtilegar sögur? Fyrir mörgum árum var mér boðið á flott golfmót á Eagle Creek í Orlando en ég var þá stödd þar með 7 ára dóttur minni sem ég tók með mér á mótið. Ég var þá tiltölulega nýbyrjuð í golfi og var smá stressuð að vera að mæta á svona fínt mót og sagði henni að hún mætti alls ekki tala þegar hinir eða ég væru að slá. Ég tók með litabækur og liti ofl. svo sú stutta hefði eitthvað að gera þessa rúma 4 tíma sem mótið yrði. Hún stóð sig mjög vel og fylgdist vel með og fór vel eftir öllum mömmureglunum sem hún hafði fengið. Kom svo á 18. og ég slæsa upphafshöggið mitt og það fer niður að vatni. Hinir slá og allir beint á braut svo við dóttir mín brunum á golfbílnum að mínum bolta. Ég labba niður að vatni og stilli mér upp við boltann og heyri kallað – mamma! Ég sussa á stelpuna og segi henni að vera hljóða og ætla að munda mig við að slá en lít þá upp og sé skelfingarsvip á henni og lít við og sé stóran Króka rétt hjá mér! Ég var mikið fegin að hún var ekki svo stillt að kalla ekki á mig í þessari stöðu! Svo er það sagan þar sem ég spilaði minn eina hring undir 80 höggum. Snemma í maí fyrir nokkrum árum fórum við fjórar vinkonur saman að spila Sjóinn/Áin. Þetta var sérlega fallegur vordagur og svo mikið gaman að vera komin aftur út á völl eftir veturinn, að við hlógum og töluðum og möluðum allan hringinn og hugurinn var hér og þar. Ég þurfti líka að taka símann tvisvar eða þrisvar sinnum á meðan ég spilaði vegna vinnu og var með hann klemmdan á eyranu í nokkrum höggum. Venjulega er ég með allt á hreinu, get farið afturábak og áfram með skorið í hausnum á mér en þennan dag var ég ekkert að hugsa og þegar við vorum búnar, fóru þær að skellihlæja enda meðvitaðari en ég með mitt góða skor, og sögðu jæja Herdís, hvert var skorið
I KYLFINGUR I 31 og ég fór að skoða og það var par par fugl par og svo framvegis og ég endaði í 79 höggum og lækkaði um 4 heila þennan daginn! Hefurðu farið holu í höggi? Ekki svo fræg að hafa farið holu í höggi en er alltaf að reyna! Tveir ernir eru á sakramentinu, annar á 15. á Holtinu og hinn kom á spænskum velli. Hver er sá besti sem þú hefur spilað með? Ég hef spilað með mörgum góðum kylfingum en sá besti sem ég spilaði með síðast, er tengdasonur minn Jón Gunnarsson í GKG. Besti golfvöllur sem þú hefur leikið? Þetta er snúin spurning, því besti golfvöllurinn að mínu mati er sá völlur, þegar gleði, gott veður og gott fólk blandast með golfinu. Ég hef spilað golf erlendis – í Ameríku, Evrópu og Suður-Afríku og þar eru margir mjög eftirminnilegir vellir sem ég hef spilað. Spilaði Bay Hill fyrir nokkrum árum sem var mjög eftirminnilegt og mikil upplifun. Í september í ár, á sextugsafmælinu mínu spilaði ég völl með sonum mínum sem heitir Waldorf Astoria í Orlando og var það var virkilega gaman og krefjandi. Jaðarsvöllur fyrir norðan er líka í miklu uppáhaldi hjá mér og ég reyni að spila hann nokkrum sinnum á hverju sumri. Svo á ég mér þann draum að spila Pebble Beach með Ástu Óskars vinkonu minni fyrir áttrætt ! Eitthvað hjá GR sem betur mætti fara? Það er ekkert sérstakt sem kemur upp í hugann enda gaman að sjá hvað allt hefur breyst til hins betra síðustu ár hjá klúbbnum og orðið snyrtilegra og fallegra. Helst að GR ingar mættu vera duglegri að laga til eftir sig almennt, laga torfuför og nota flatargaflana en annars bara allt ljómandi fínt. Eitthvað að lokum? Það er aldrei of seint að byrja í þessu sporti – Golfið er svo miklu meira en bara golf og góð hreyfing, það er líka mannrækt og útiveran hressir kætir og bætir. Pétur Franklín hlaut Háttvísibikarinn 2025 2004 Þórður Rafn Gissurarson 2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir 2006 Guðni Fannar Carrico 2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir 2009 Andri Þór Björnsson 2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2011 Sunna Víðisdóttir 2012 Ragnhildur Kristinsdóttir 2013 Saga Traustadóttir 2014 Ingvar Andri Magnússon 2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir 2016 Dagbjartur Sigurbrandsson 2017 Böðvar Bragi Pálsson 2018 Elvar Már Kristinsson 2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir 2020 Tómas Eiríksson Hjaltested 2021 Helga Signý Pálsdóttir 2022 Perla Sól Sigurbrandsdóttir 2023 Perla Sól Sigurbrandsdóttir 2024 Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir 2025 Pétur Franklín Atlason Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig. Pétur Franklín Atlason hlýtur viðurkenninguna í ár. Pétur Franklín er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkenndur. Hann er samviskusamur, metnaðarfullur og duglegur við æfingar. Pétur endurspeglar eiginleika og gildi Golfklúbbs Reykjavíkur í bæði leik og ástundun sinni, hann er jákvæður, áhugasamur, með mikinn íþróttaanda, hefur sýnt mikla þrautseigju og framfarir í ár. Enn fremur hefur hann verið sér sjálfum og klúbbnum til mikils sóma bæði innan sem utan vallar. Pétur sýndi einnig miklar framfarir á golfvellinum í sumar og endaði Pétur í 2.sæti bæði á Íslandsmótinu í höggleik og holukeppni. Hann endaði síðan sumarið með frábærum árangi og sigri á lokamóti unglingamótaraðarinnar á Korpu. Þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:
32 I KYLFINGUR I Árið hjá mér byrjaði frekar hefðbundið með tækniæfingum, styrktaræfingum og æfingum með besta vini íslenskra kylfinga Trackman. Ég ákvað að taka þátt í vetrarmótaröð Trackman, NEXT Golf Tour, sem var skemmtileg tilbreyting að geta keppt um háar fjárhæðir á miðjum vetri en samt fundið fyrir stressinu sem fylgir því að keppa. Í febrúar fór stór hluti af meistaraflokki GR í æfingaferð á La Finca svæðið, sem var vel heppnuð og var gott að brjóta upp veturinn með því að komast í aðeins betra loftslag og sjá aðeins hvar leikurinn stendur þegar hinn helmingurinn af undirbúningstímabilinu er eftir. Held að strákarnir í meistaraflokknum muni samt örugglega mest eftir því hvernig heimferðin var hjá okkur. Nóttina áður en við förum heim var ég með kaldan svita, skjálfta, hausverk og allt sem manni dettur í hug. Ég var eins og draugur alla heimferðina og endaði á því að vera rúmliggjandi í rúma viku eftir heimkomuna með um 41 stiga hita. Sökum þessara veikinda gat ég lítið æft það sem eftir var af febrúarmánuði þar sem líkaminn gat ekki tekið við miklum átökum í þó nokkurn tíma. Það var í raun ekki fyrr en um miðjan mars þar sem mér leið eins og ég væri komin með fullan kraft aftur, ekki seinna vænna með tæpar 3 vikur í fyrsta mót á LET Access. Í mars þá breytist æfingahugsunin úr mest tækniæfingum í fullan fókus á keppnis-líkar æfingar. Fyrsta mót ársins fór fram í suður Frakklandi á Terre Blanche svæðinu sem er um 40 mínutum frá Nice, og svæði sem ég mæli eindregið með að kíkja á. Þetta mót gaf mér mikla trú á því sem ég var að gera um veturinn þó að skorið hafi ekki verið gott þá var margt mjög jákvætt sem hægt var að taka með sér áfram. Portúgal var næsti áfangastaður, mjög góð spilamennska og enda þar í topp 10. Áður en maí yfirlauk komu tvö mót í röð, Austurríki og á Spáni. Í Austurríki skipti öllu máli hvar þú varst á ráslistanum og því miður var ég á vitlausum stað og voru einungis um 10 leikmenn á minni „hlið“ sem náðu niðurskurðinum. Á Spáni var ekki hægt að klaga upp á veðrið, önnur góð spilamennska en vantar svona herslumuninn til að koma mér í almennilega baráttu. Í atvinnumannaheiminum þarf að velja mótin sem maður tekur þátt í, því ekki er hægt að taka þátt í öllu eða alla vega ekki fyrir mitt leyti þar sem að hausinn mun þreytast hratt og þarf því að taka sér smá pásu, koma heim og anda aðeins. Það var einmitt það sem ég gerði eftir Spán, kom heim sleppti einu móti og mætti endurnærð til Tékklands um miðjan júní. Þar í um klukkutíma fjarlægð frá Prag er Panorama svæðið sem ALLIR ættu að kíkja á; 27 holur, flott æfingasvæði og frábært útsýni. Þetta er samt örugglega erfiðasti völlurinn sem við spilum á hverju ári. Áfram flott spilamennska en vantaði nokkur pútt upp á að geta blandað sér í toppbaráttuna á lokahringnum. Í huganum var einungis tímaspursmál hvenær ég myndi ná öllu saman í einu og sama mótinu. Í lok júní var kominn tími til að rifja upp sænskuna og eyða þremur vikum í Svíaveldi. Fyrsta mótið þar var mjög skemmtilegt, 4 daga mót sameiginlegt með Nordic League hjá strákunum og spilað á tveimur völlum sem tilheyra Landeryd GK í Linköping. Eftir lala fyrstu 3 hringi, var komið að lokahringum þar sem allt kom heim og saman en mistök á lokaholunni gerðu það að verkum að ég endaði í 23. sæti í stað þess 4; en þetta gaf virkilega góð fyrirheit fyrir það sem var í vændum á næstu vikum. Næsta mót spilaðist alveg eins og vikuna áður, allt í lagi fyrstu 2 hringir en síðan kviknaði á vélinni á seinni 9 seinasta hringinn og í staðinn fyrir að gera mistök á seinustu, fæ ég örn og enda ein í öðru sæti. Þetta var nákvæmlega niðurstaðan sem ég þurfti á þessum tíma. Næsta mót í Västerås byrjaði nákvæmlega eins og það seinasta endaði, fyrsti hringurinn -8 og náði að enda annan hringinn mjög vel og var tveimur höggum á eftir danskri stelpu fyrir lokahringinn. Við skiptumst á forustunni allan hringinn og vorum við jafnar fyrir lokaholuna. Sú hola hentar mér mjög vel og þar sem að hún spilaðist í miklum meðvindi endaði upphafshöggið mitt um 20 m frá flötinni. Daninn endar um 15 m frá holunni eftir annað höggið, hún á um 2.5m eftir pari á meðan ég á um 3.5m fyrir fugli. Ég tryggi púttið mitt og hún missir sitt par pútt, með því varð ég fyrsti íslenski kvenkylfingurinn sem sigrar á atvinnumannamóti. Það gafst því miður ekki mikill tími til að fagna þessum sigri þar sem að daginn eftir var ég komi í flug til Spánar þar sem næsta mót fór fram. Ég viðurkenni það fúslega að mótið á Spáni er í smá móðu þar sem að það var erfitt að koma sér niður á jörðina eftir sigurinn í Svíþjóð, og missti ég af niðurskurðinum með einu höggi sem var erfitt að kyngja eftir spilamennskuna seinustu vikurnar. Það var því vel við hæfi að næsta flug var með áfangastaðinn Keflavík; og fékk ég tæpa viku heima til að slappa aðeins af, fagna sigrinum með fjölskyldu áður en komið var að næsta móti. Verslunarmannahelginni var eytt í Danmörku á Norður Jótlandi, Himmerland GK. Þar náði ég einhvern veginn að koma mér í gegnum niðurskurðinn þrátt fyrir alls ekki góða spilamennsku. Íslandsmótið var næst á dagskrá og ber að hrósa Keili fyrir framkvæmdina. Þar náðu ferðalög og andleg þreyta mér eftir seinustu vikurnar og var spilamennskan eftir því en það er mjög margt sem ég lærði á þessum fjórum hringjum á Hvaleyrarvelli sem ég tek með mér inn í næstu tímabil. Seinasta langa ferðalagið þetta árið varði í 5 vikur, frá miðjum ágúst fram í miðjan september. Fyrsta mótið af þessum fimm var LET mót í Svíþjóð þar sem ég náði ekki að sýna mitt besta andlit en það var gott að sjá að þegar ég spila mitt golf þá á ég heima á þessu sviði. Írland var næst á dagskrá, þar var spilamennskan svipuð og í upphafi tímabils vantaði herslumuninn uppá. Síðan kemur eitt af skemmtilegustu mótum ársins á LET Access og það er haldið af Justin Rose og eiginkonu hans. Það er gífurlegur metnaður sem fer í þetta mót og það sést í öllu sem tengist þessu móti. UppRagga Kristins gerir upp árið 2025 Västerås var toppurinn
I KYLFINGUR I 33 hafshögg og innáhögg voru til fyrirmyndar í þessu móti en því miður var pútterinn ískaldur en rosalegt sjálfstraust sem ég tók út úr þessu móti. Frakkland var næst á dagskrá og þar var veðurspáin EKKI góð, grenjandi rigning samfleytt í 4 daga. Slátturinn var jafnvel betri en í Englandi en munurinn var að pútterinn var líka í stuði, og var ég 6 undir eftir 2 hringi jöfn í efsta sæti. Eftir um 5 holur í lokahring var leikur stöðvaður sökum þrumuveðurs sem gekk yfir á um 35 mínútum en við byrjuðum ekki aftur þar sem að rigningin stoppaði ekki og völlurinn orðin óleikhæfur eftir um 150 mm af rigningu á þessum 3-4 dögum. Þannig að ég og mexíkani sem vorum jafnar eftir 2 hringi vorum kallaðar á fund mótstjórnar þar sem okkur var tilkynnt að reynt yrði að fá sigurvegara þar sem að 9. holan væri ennþá leikhæf. Við enduðum á að spila 9. holuna þrisvar sinnum í grenjandi rigningu en það var mexíkaninn sem hafði betur. Þetta var mjög flott mót sem ég gekk mjög sátt frá. Seinasta mótið á þessu 5 vikna ferðalagi var í Sviss, þar var pútterinn ískaldur í um 27 holur, en hann hitnaði vel á seinni 9 annan hringinn og endaði ég -4 í mótinu og í mjög góðri stöðu til að fá LET þátttökurétt á næsta ári. Eftir um þriggja vikna pásu var komið að seinasta móti ársins rétt fyrir utan Zaragoza á Spáni. Ég vissi nákvæmlega hvað ég þurfti að gera til að vera í topp 7 á stigalistanum til fá LET kortið á næsta ári. Sló algjörlega eins og engill, en var einhvern veginn aldrei með lengdarstjórnunina á flötunum og missi niðurskurðinn eftir 2 skolla á seinustu 4 holunum. Hins vegar var ég í topp 7 þegar að um þrjár holur voru eftir á mótinu en svo gerist í raun allt sem mátti ekki gerast og ég enda tímabilið í áttunda sæti á stigalistanum tveimur og hálfu stigi frá sjöunda sætinu. Eftir að ég kom heim hef ég reynt að hugsa sem minnst um golf, gleyma mér aðeins í hversdagsleikanum til að vera tilbúin í úrtökumótið sem hefst í desember og lýkur rétt fyrir jól. Þegar að tímabilnu lýkur svona er maður fljótur að hugsa aðeins um það neikvæða, en ég hef verið minnt á það reglulega frá vinkonum mínum á túrnum hversu gott tímabil þetta var í raun og veru og hversu mikið ég hef bætt mig í öllum hlutum leiksins. Sjálf er ég hægt og rólega að sjá það, og ég viðurkenni það fúslega að það hefur hjálpað mér mikið að skrifa þetta niður. Ósjálfrátt fer maður að hugsa um allt það skemmtilega, allar minningar sem maður skapar í hverju móti, ferðast um allan heim, hitt alls konar fólk og eignast vinkonur fyrir lífstíð útaf golfi. Þegar hlutirnir fara að róast sér maður einnig hverju maður er búin að missa af sérstaklega þegar að litlu frændsystkinin eru orðin fimm talsins en tíminn sem ég ver með þeim minnir mig á að það er svo miklu meira í þessu lífi en golf.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==