KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 105 Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, stóðu uppi sem sigurvegarar í VitHit Vormóti GÞ. Þetta var annað mótið á GSÍ mótaröðinni í sumar og voru leiknar 36 holur yfir helgina. Fyrirkomulag mótsins var breytt punktakeppni, og stigagjöfin eftirfarandi: Albatross: 8 punktar Örn: 5 punktar Fugl: 2 punktar Par: 0 punktar Skolli: -1 punktur Tvöfaldur skolli eða verra: -3 punktar Í karlaflokki stóð Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, uppi sem sigurvegari með 26 punkta. Hann var efstur eftir fyrri keppnisdaginn og lék aftur best seinni daginn. Hann skilaði hring upp á ellefu punkta, fjóra á fyrri níu og sjö á seinni. Sigurður var jafn með næstbesta meðalskorið á bæði par 3 og par 4 holunum um helgina, og var jafn með besta meðalskorið á par 5 holum. Stöðugt og gott golf hjá Sigurði. Þremur punktum á eftir Sigurði var Tómas Eiríksson Hjaltested, GR. Tómas var með flesta fugla allra í mótinu, fjórtán talsins, en hann var einnig með flesta fugla í Vormóti GM. Tómas og Sigurður Bjarki skiptust á að halda forystunni í gegnum seinni hringinn, og var spennandi að fylgjast með. Tómas endaði einnig í öðru sæti á Vormóti GM um síðastliðna helgi. Arnór Tjörvi Þórsson, GR, varð þriðji með 19 punkta. Hann fékk, líkt og Tómas, fjórtán fugla í mótinu. Góður árangur í 36 holu móti. Golfklúbbur Reykjavíkur átti flesta keppendur á GSÍ mótaröðinni um helgina, eða 19 talsins. Sigurður Bjarki sigraði VitHit-vormótið í Þorlákshöfn Sigríður Guðmundsdóttir hóf störf á skrifstofu félagsins 1. febrúar. Sigríður tekur við af Dóru Eyland sem hefur sinnt þjónustu- og markaðsmálum hjá félaginu undanfarin ár. Sigríður er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á markaðsfræði og er með meistarapróf í kennsluréttindum. Hún hefur síðastliðin 9 ár unnið sem umsjónarkennari og þar áður hjá Landsbankanum sem þjónustufulltrúi. Um leið og við bjóðum Sigríði velkomna til starfa þá þökkum við Dóru Eyland fyrir vel unnin störf í þágu félagsins síðastliðin 12 ár og óskum henni velfarnaðar í nýjum verkefnum. Stjórn GR. VELKOMIN TIL STARFA HJÁ GR SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR RÁÐIN Á SKRIFSTOFU FÉLAGSINS

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==