106 I KYLFINGUR I Úrslitakeppni Landsmótsins í golfhermum fór fram föstudaginn 25. apríl í Íþróttamiðstöð GKG. Eftir tvær undankeppnir og harða baráttu höfðu 268 keppendur verið skornir niður í sextán, átta karla og átta konur. Leikinn var 36 holu höggleikur á Le Golf National vellinum í París, sem reynir á allar hliðar golfsins. Karlar leika völlinn af svörtum teigum, 6650 metrar og konur af bláum teigum, 5246 metrar. Eftir fyrri 18 holurnar voru það Veigar Heiðarsson og Ragnhildur Kristinsdóttir sem leiddu mótið. Veigar lék hringinn á 67 höggum og var með eins höggs forystu á þá Andrá Má Guðmundsson og Val Snæ Guðmundsson. Ragnhildur lék á 62 höggum, eða 10 undir pari, og var með fjögurra högga forystu á Evu Kristinsdóttur og Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Seinni 18 holurnar voru sýndar í beinni útsendingu á bæði Stöð 2 Sport og Facebook síðu GSÍ. Mikil vinna er lögð í mótið og gaman að sjá afrakstur þess og spilamennsku þeirra flottu kylfinga sem við eigum. Seinni hringurinn spilaðist erfiðari en sá fyrri, en vindurinn í golfhermunum var aukinn milli hringja. Sú breyting hafði áhrif á spilamennsku, en einungis þrír kylfingar skiluðu inn betra skori í rokinu á seinni hringnum. Eftir frábæran fyrri hring tryggði Ragnhildur sér sigurinn með því að leika aftur best allra kvenna á seinni hringnum, eða á 69 höggum. Hún sigraði mótið með fimm högga mun og reyndist sigurinn aldrei í hættu. Eva Kristinsdóttir endaði í öðru sæti á -8 eftir tvo flotta hringi og Guðrún Brá tók þriðja sætið með samanlagt skor upp á -1. Hjóna- og parakeppni GR fór fram þriðjudaginn 17. júní á Grafarholtsvelli. Mótið var fullsetið og fylltist mótið á stuttri stundu og var langur biðlisti. Það mættu 68 hjón/pör til leiks, fengu á sig smá rigningu en fínasta golfveður. Leikið var með Greensome fyrirkomulagi, stoppað í pylsu á leiðinni og var þjóðhátíðarstemmning yfir vellinum. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu fimm sætin ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 holum vallarins. Keppnin var jöfn en sigurvegarar dagsins voru hjónin Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir. Úrslit mótsins voru eftirfarandi: Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir 62 nettó Karen Guðmundsdóttir og Andri Þór Björnsson 63 nettó (betri seinni 9) Rut Hreinsdóttir og Guðmundur Bjarni Harðarson 63 nettó Guðný Brynhildur Þórðardóttir og Björn Ólafur Bragason 64 nettó(best seinni 9) Halldóra Jóhannsdóttir og Gunnlaugur K. Guðmundsson 64 nettó Nándarverðlaun: 2.braut: Eysteinn Jónsson 73,5 cm 6.braut: Arnar Ottesen 3,24 m 11.braut: Gunnlaugur H Jóhannsson 1,55 m 17.braut: Kristján Ágústsson 1,23 m Golfklúbbur Reykjavíkur óskar vinningshöfum til hamingju með flottan árangur og þakkar fyrir vel heppnað 17. júní þjóðhátíðarmót. Einnig þökkum við þeim styrktaraðilum sem gáfu frábær verðlaun fyrir stuðninginn. Júlíus Ingi og Ragnhildur unnu Hjóna- og para keppnina Ragnhildur Kristinsdóttir sigraði Landsmótið í golfhermum I KYLFINGUR I 106
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==