I KYLFINGUR I 109 Þrír íslenskir kylfingar léku á lokaúrtökumóti fyrir Opna breska áhugamannamótið sem fram fór um miðjan júní. Það voru þeir Tómas Eiríksson Hjaltested, Dagbjartur Sigurbrandsson og Aron Emil Gunnarsson. 72 kylfingar léku um 23 laus sæti í mótinu, sem er eitt stærsta mót ársins fyrir áhugakylfinga. Leikið var á Royal Cinque Ports vellinum sem er staðsettur á austurströnd Bretlands. Tómas Hjaltested fór fyrstur Íslendingana af stað og byrjaði sinn hring á fugli. Hann fylgdi því eftir með góðri spilamennsku og endaði á 70 höggum, tveimur undir pari. Dagbjartur fór síðastur af stað. Hann opnaði hringinn á fugli, líkt og Tómas, og var kominn tvo undir par eftir sex holur. Eftir skolla á 15. holu var nokkuð ljóst að fugl þyrfti að detta á síðustu holunum til að Dagbjartur væri öruggur áfram. Þar sýndi hann stáltaugar, rúllaði þremur góðum púttum í og lék síðustu þrjár holurnar einn undir pari. Hann lauk því leik á 70. höggum eins og Tómas og urðu félagarnir því jafnir í 11. sæti mótsins og þar með þátttökurétt á Opna breska áhugamannamótinu sem hófst mánudaginn 16. júní. . Tómas komst í 32 manna úrslitin Tómas Eiríksson Hjaltested, kylfingur GR, komst í 32 manna úrslitin á Opna breska áhugamannamótinu. Sex íslenskir kylfingar tóku þátt í mótinu í ár en enginn af þeim fylgdi Tómasi í 32 manna úrslitin, en Logi Sigurðsson tapaði í bráðabana um sæti í þeim. 288 kylfingar léku 36 holu höggleik fyrstu tvo dagana þar sem efstu 64 kylfingarnir komust áfram í útsláttarhluta mótsins. Í 64 manna úrslitunum mætti Tómas hinum franska Paul Beauvy. Beauvy lék hringina tvo í höggleiknum á sex höggum undir pari og varð jafn í sjötta sæti. Það stefndi því í hörkuleik. Tómas byrjaði hringinn af ótrúlegum krafti og fékk tvo fugla á fyrstu tveimur holunum. Hann bætti við forystu sína á þriðju holunni og var þá kominn þrjár upp eftir fimm. Fugl á sjöttu og sjöundu holunum gerðu það að verkum að Tómas átti fimm holur gegn Frakkanum knáa og Tómas í frábærri stöðu. Eftir sigur á tíundu og elleftu holunni átti Tómas sjö holur þegar sjö voru eftir, og sigurinn nánast í höfn. Hann þurfti þó að bíða aðeins eftir honum, en leikurinn kláraðist á fimmtándu holu með 5/3 sigri Tómasar. Frábær árangur. Tómas mætti hinum þýska Tim Wiedemeyer, sem er í 68. sæti á heimslista áhugamanna, í 32 manna úrslitunum en tapaði og er því úr leik. Engu að síður frábær árangur. Sigur í mótinu gefur þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu og Masters mótinu. Haraldur Franklín náði lengst allra íslenskra karla þegar hann komst í 8 manna úrslit mótsins árið 2014. Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir á þó bestan árangur allra, en hún komst í úrslit mótsins árið 2021. Tómas og Dagbjartur spiluðu sig inná Opna breska áhugamannamótið
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==