KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 11 ALMENN ÁNÆGJA MEÐ STÖRF STJÓRNAR AÐALFUNDUR GR Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn á Korpúlfsstöðum þriðjudaginn 2. desember og voru um 175 félagsmenn sem mættu á fundinn. Formaður félagsins, Gísli Guðni Hall, flutti ítarlega skýrslu um störf stjórnar á árinu. Harpa Ægisdóttir fjármálastjóri, kynnti ársreikning félagsins og fór yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Gísli Guðni bauð sig fram til áframhaldandi formennsku og hefur nú sitt fimmta ár sem sitjandi formaður. Sitjandi stjórnarmenn í aðalstjórn, kosin á aðalfundi 2024 eru Brynjar Jóhannesson, Kristín Eysteinsdóttir og Ólafur William Hand. Kosið var þrjú sæti til tveggja ára í aðalstjórn á nýliðnum aðalfundi, sjálfkjörin var Elín Sveinsdóttir. Guðmundur Arason fékk áframhaldandi kosningu til tveggja ára. Þá var kosinn Hrannar M. Hallkelsson, en hann var í varastjórn. Í varastjórn til eins ár voru kjörin Þórey Jónsdóttir, Arnór Ingi Finnbjörnsson Jón Karlsson, en sá síðastnefndi kemur nýr inn. Stjórn og varastjórn Golfklúbbs Reykjavíkur er því fullskipuð fyrir komandi rekstrarár. Margeir Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér, en hann hefur setið í stjórn frá árinu 2014. Gísli þakkaði honum fyrir góð störf, en fáir hafa komið jafn mikið við sögu í rekstri og stjórn klúbbsins á þessari öld. Hann réði sig sem vallarstjóri í Grafarholti 1995 og síðan framkvæmdastjóri GR á árunum 1998 til 2008. Hann var kosinn í stjórn GR 2014 og hefur setið þar til nú. Gísli þakkaði honum fyrir ómetanleg störf og stuðning. Rekstur klúbbsins gekk vel á starfsárinu 2024–2025 og námu tekjur alls 878 milljónum króna og rekstrarafgangur 76,4 milljónir. Heildareignir nema 1.839 milljónum króna og eiginGísli Guðni Hall, formaður GR, flytur skýrslu stjórnar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==