112 I KYLFINGUR I Sunnudaginn 23. febrúar var haldinn skemmtilegur og fjölbreyttur golfdagur fyrir alla aldurshópa 18 ára og yngri í íþróttastarfi GR. Viðburðurinn var hluti af vetrarfríi grunnskólanna í Reykjavík og var boðið upp á skemmtilegar æfingar og spennandi keppnir. Lagt var áherslu á að efla félagsleg tengsl, skapa stemningu og stuðla að samveru á milli þátttakenda. Þátttakendum var skipt í lið sem kepptu sín á milli í mismunandi æfingum og áskorunum: – Púttkeppni – Vippkeppni – Borðtennis – Spurningakeppni – Keppni í golfhermum Að lokinni keppni var haldin glæsileg verðlaunaafhending þar sem sigurvegarar voru heiðraðir. Að því loknu var boðið upp á ljúffenga pizzaveislu. Foreldrafélag GR stóð sig með prýði við að skipuleggja þennan skemmtilega viðburð fyrir unga og efnilega kylfinga GR. SKEMMTILEGUR GOLFDAGUR Í ÍÞRÓTTASTARFI GR Liðakeppni GR fór fram í sumar tíunda árið í röð. Styrktaraðili keppninnar er ISAM og ber keppnin nafnið FootJoy bikarinn eins og síðustu tvö ár þar á undan. Það voru 16 lið skráð til keppni í ár og léku í fjórum riðlum þar sem öll fjögur liðin í riðlunum léku innbyrðis. Í hverjum leik léku sex leikmenn, einn fjórleik og fjóra tvímenninga. Í riðlakeppninni er að jafnaði leikinn einn leikur í viku en riðlakeppnin í ár var leikinn frá því seinni part júnímánaðar og lokaumferð riðlakeppni var leikinn í vikunni eftir meistaramótið. Hver leikur er 9 holur og allir leikirnir fara fram á Korpu. Tvö efstu liðin í hverjum riðli komust átta liða úrslitakeppni. Amenn unnu liðakeppni GR 2025 eftir úrslitaleik við Ása og við óskum þeim til hamingju með sigurinn. AMENN UNNU FOOTJOY BIKARINN 2025
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==