KYLFINGUR 2025

114 I KYLFINGUR I Ecco púttmótaröðin, sem er púttmótaröð karla hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, er orðin fastur liður í vetrarstarfi GR. Mótaröðin stóð yfir frá 23. janúar til 14. mars eða í 8 vikur alls. Leiknar eru 8 umferðir og 5 bestu umferðirnar telja bæði í einstaklingskeppninni sem og liðakeppninni. Jónas Gunnarsson er besti púttari Golfklúbbs Reykjavíkur 2025, sigraði nokkuð örugglega ungu drengina úr liði 1, Arnór Tjörva og Pál Birki, sem skipuðu annað og þriðja sætið. Í liðakeppninni, eins og árið áður, var baráttan, eiginlega frá fyrstu umferð, milli liða 1 og 4 og fór svo að lokum að liðin enduðu jöfn. Eftir umspil varð lið nr. 1 nr. 1. Þessi tvö lið höfðu nokkra yfirburði, eins og áður sagði, yfir önnur lið. Lið 4 var skipað þeim Guðmundi Óskari Haukssyni, Ingimari Þ. Friðrikssyni, Jónasi Gunnarssyni, Kristjáni Ólafssyni og Róberti Arnþórssyni. Í þriðja sæti varð svo lið nr. 32. Í því liði voru Hlynur Elísson, Loftur Ingi Sveinsson, Óliver Hlynsson, Trausti Elísson og Valur Guðnason. Bestu þakkir til Ecco sem er styrktaraðili mótaraðarinnar og ekki síður þakkir til þeirra félaga sem eru með á mótaröðinni og komu færandi hendi með verðlaun þetta árið. Jóhannes Oddur Bjarnason í Danól kom færandi hendi í byrjun með kaffi og glös sem dugði alla mótaröðina og lagði svo til tvo vinninga að auki þrátt fyrir að vera ekki með á mótaröðinni, alveg einstakur félagi. Svo er vert að minnast á Geira frá Stjörnugrís, Guðmundur Björnsson í Flotun er alltaf traustur, Kjarri í Kólus sér um páskaeggin enn eitt árið, Jón Karlsson golfkennari og Ólafur Gylfason frá Nivea létu sitt ekki eftir liggja ásamt fleirum. Einnig ber að þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem finnst bara sjálfsagt að styrkja svona félagsskap hjá GR. Má þar nefna Myndform, Laugar Spa, Herrafataverslunina Karlmenn og mörg önnur. Átta lið fengu klst í hermi hjá Viggó í Golfklúbbnum. Takk kærlega fyrir það. Ekki má gleyma að þakka okkar allra besta manni, Atla Þór Þorvaldssyni, sem er mín hægri hönd í þessu öllu saman. Ómar Örn framkvæmdastjóri GR, Dóra Eyland og Harpa Ægis standa vel að baki mér og gera þetta allt framkvæmanlegt. Bestu þakkir fyrir það. Að lokum óska ég sigurvegurunum til hamingju með árangurinn. Svo að endingu þakka ég öllum fyrir þátttökuna í vetur og vonandi hafa allir haft einhverja ánægju af. Gangi ykkur vel í golfinu í sumar. HBK Sigurliðið, fv.: Páll Birkir Reynisson, Jónas Kristjánsson, Jón Karlsson, Jón Þór Ólafsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Jónas Gunnarsson, besti púttarinn 2025. púttmótaröðin Lið nr. 1 sigurvegari 2025

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==