14 I KYLFINGUR I Grafarholtsvöllur Grafarholtsvöllurinn kom nokkuð vel undan vetri, betur en í meðalári, og við vorum ánægð með ástand hans í allt sumar. Það var tímabil í júní sem var okkur aðeins erfitt, þar sem vallarstjórar þurftu að vinna í flötunum. Það þurfti að þétta vöxtinn og það sem telur nokkuð mikið í þessu – að vinna í því að fá réttu grastegundirnar til að vaxa frekar en þær sem við viljum síður. Þetta er þolinmæðisvinna og er unnin út frá langtímamarkmiðum um gras og þá á kostnað þess dags og skammtímalausna. Flatirnar verða verri í einhverja daga, en betri og harðgerðari einhverjum vikum seinna, auk þess sem líkur á góðu næsta ári verða meiri. Þetta gildir einnig um slátt flata. Það er skemmtilegt að pútta á flötum þar sem grasið er slegið þétt niður, rúllið verður betra, en ef farið er of geyst í að slá flatirnar niður getur það nært óæskilegar grastegundir á kostnað þeirra sem við viljum ná upp. Þetta er því jafnvægislist og geta verið sjónarmið í báðar áttir. Það er sjálfsagt ekki hægt að ætlast til að almennir kylfingar átti sig á þessu og ekki óeðlilegt að pirringur skapist, við viljum góðar og hraðar flatir – alla daga! Ég held að á síðustu tveimur árum sérstaklega höfum við dregið þann lærdóm að við þurfum að bæta upplýsingagjöf um þessi efni og hvað er að gerast á völlunum okkar á hverjum tíma, og þá held ég að skilningurinn verði meiri, þó við gerum sennilega aldrei alla ánægða og það alltaf. Við erum með frábæra vallarstjóra á báðum völlum, með mikla reynslu og þekkingu. Þegar vellirnir koma ekki vel undan er það ekki vegna þess að þeim hefur farið aftur frá því árinu á undan, skýringarnar er yfirleitt allavega að finna annars staðar og þá oftar en ekki í náttúrunni, hún hefur þann eiginleika að hegða sér með mjög svo breytilegum hætti. Við sáum ýkt dæmi um þetta á Oddfellow-vellinum í sumar, þar sem flestar flatirnar komu nánast steindauðar undan vetri og tók nánast allt sumarið hjá þeim að vinna þær upp. Þetta voru sömu góðu vallarstjórarnir við stjórnvölinn hjá þeim og í fyrra og hitteðfyrra, þegar flatirnar hjá þeim voru í hæstu hæðum. Hitt sem ég vildi segja um Grafarholtið eru framkvæmdirnar. Við höfum tekið í notkun nýja 17. og 18. braut. Næsta vor tökum við í notkun nýja 1. braut, og ég vonast til að um mitt sumar eða seinni part getum við opnað inn á nýja 3. braut. Samtímis opnum við þá inn á nýja teiga á 4. braut sem gera þá holu mun betri en hún er í dag, við erum búin að slétta brautina nú þegar, eins og þið vitið. Þetta verður Úr ræðu formanns GR, Gísla Guðna Hall, á aðalfundi GR: VELLIRNIR OKKAR VERÐI ÁVALLT Í FREMSTU RÖÐ
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==