KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 15 risa áfangi. Það er í planinu okkar að vinna nýja 10. flöt á þessu ári, ekki ósvipað og þá 11. í fyrra, nema að sú 10. er heldur einfaldari í gerðinni. Næsta vetur klárum við svo nýja teiga á 11. braut þannig að við getum opnað nýja 11. braut sumarið 2027. Þá verður stutt í opnun á nýrri 10. braut, og þá geri ég einnig ráð fyrir að hylli í nýja 2. braut, það verður tiltölulega einfalt að gera nýja flöt þar er nýir teigar á þeirri þriðju hafa verið gerðir. Við förum að njóta meiri ávaxta: Bara núna næsta sumar verða nýuppgerðar brautir orðnar fimm, og árunum 2027 og 2028 líklega þrjár til viðbótar. Þetta gera 8 holur, þannig að við verðum nálægt því að vera hálfnuð með það verkefni að endurbæta allan völlinn. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að fylgjast með, og sjá hvað við erum að fá, m.a. í gæðum flata og brauta. Einn lærdómurinn síðustu ár er að leyfa flötunum að standa nógu lengi eftir sáningu, a.m.k. 12 mánuði, áður en hleypt er inn á þær. Núna seinni part sumars var nýja fyrsta flötin orðin eins og teppi, ekki ósvipað æfingaflötinni nýju á Korpunni. Við viljum halda áfram með þetta verkefni, og ekki slá slöku við, við viljum að þið klúbbmeðlimir fáið að njóta ávaxtanna fyrr en seinna. Hvert ár, og það fyrir hverja holu, skiptir okkur miklu máli. Svo getum við alltaf tekið stöðu og ákveðið hvort við gefum í, eða hvort við förum hægar í sakirnar. Korpúlfsstaðavöllur Ef ég vík þá að Korpúlfsstaðavellinum, þá voru vonbrigði hvernig hann kom undan vetri, og þá sérstaklega flatir. Þær voru hægar til og mikið og tímafrekt verkefni að fá þær í gott stand. Júnímánuður var mjög erfiður. Ég er búinn að tala um flatir, það sem ég sagði um þær á eins við á Korpunni. Það voru nokkrir krísufundir sem við áttum hérna fyrri part sumars, sjálfsagt ekki ósvipað og hjá fótboltaliði sem hefur tapað nokkrum leikjum í röð. Þetta er álag og pressa sem við, og sérstaklega vallastjórar og starfsmenn, finna. En þeir vita líka að þetta er hluti af starfinu þeirra og þeir finna stuðninginn líka. Korpúlfsstaðavöllurinn er miklu yngri völlur heldur en Grafarholtið, og ekki orðin sama þörf á endurbótum eins og þar. Það er þó þannig að sumir hlutar í vellinum eru komnir á tíma. Sérstaklega glompur og nokkrar flatir eru okkur alltaf erfiðar. Það er margt sem okkur langar til að gera, en við getum ekki gert allt og alls ekki á sama tíma og í Grafarholtinu. Við höfum þó ekki viljað skilja völlinn útundan og viljum bæta gæðin eins og við mögulega getum. Við tókum stórt skref er við ákváðum að malbika alla stíga vallarins. Það var ristastórt og fjárfrekt verkefni, en er nú að mestu leyti búið, þar með talinn frágangur, það eru smá leifar eftir. Við erum að borga þriðju stóru greiðsluna á þessu ári og það sem þá stendur eftir er tiltölulega lítið, nær 10–12 millljónum samanborið við greiðslur upp á 35–37 milljónir í þrjú ár. Þetta verkefni hefur gengið vel og lyft vellinum á hærra plan. Við höfum einnig gert átak í að byggja upp nýja teiga, sérstaklega framteiga, sem einfaldlega þurfti til að völlurinn væri ekki of erfiður á framteigum og tefði jafnvel leik, og svo

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==