16 I KYLFINGUR I bakteiga, til að viðhalda vellinum sem keppnisvelli í fullri lengd. Bestu kylfingarnir slá sífellt lengra, og við höfum mætt þeirri þróun eins og velflestir heldri klúbbar víðs vegar um heim. Við höfum einnig lagað og stækkað 57 teiga sem voru hvað slappastir. Við höfum því reynt að sinna Korpunni líka. Við lítum svo á að Korpan og Grafarholtið séu okkur jafn mikilvægir vellir, þeir eru báðir í röð bestu valla landsins og þannig skal það alltaf vera. Thorsvöllur Mér finnst ég verða að taka Thorsvöll sérstaklega í þessari umræðu. Eins og við vitum er hann styttri völlur og hefur fyrst og fremst verið ætlaður börnum, unglingum, byrjendum og svo eldri kylfingum, eða hverjum þeim sem telur völlinn henta sér. En þessi völlur hefur einhvern veginn setið eftir og áherslan verið á stóru vellina og gæði þeirra. Það var á verkefnalistanum hjá okkur á liðnu starfsári að slétta ósléttustu braut vallarins og jafnvel tvær, en starfsmenn komust ekki í það. Það verður líka að viðurkennast, að sennilega er betra að hugsa þennan völl upp á nýtt og gera fyrir hann masterplan til að vinna eftir, frekar en að ákveða eitthvað svona tilfallandi hverju sinni. Síðasta sumar gerðum við reyndar mjög veglegan fyrsta teig á vellinum og notuðum í hann hybrid gras, sem sagt blöndu af gervigrasi og alvöru grasi, sem við vonumt til að geti verið lausn fyrir okkur í teigagerð á komandi árum, t.d. þannig að við setjum svoleiðis gras á hluta teiga til að nota á viðkvæmustu tímum. Þetta er háð því að tilraunin gangi upp, en hún lofar góðu og ég hvet ykkur bara til að fara út og skoða, þegar þið eigið færi á. En eins og ég segi, við stöndum í skuld við þennan völl, og á síðasta ári gerðum við ekki það sem við ætluðum okkur. Áætlun okkar núna miðast við að leggja aukna áherslu á að ástand Thorsvallar verði betra á næsta ári, allur sláttur verði skoðaður, merkingar gerðar betri og annað sem lýtur að snyrtilegheitum og daglegri umhirðu. Við eigum að geta betur. Láta svo búa til gott framtíðarplan fyrir þennan völl og byggja hann upp og þróa samkvæmt því plani. Þetta er það sem við teljum best í stöðunni núna, og við í stjórninni vitum að við erum berskjölduð gagnvart gagnrýni á að hafa ekki gert meira. Það breytir því ekki að við erum meðvituð um mikilvægi Thorsvallar, raunar aukið mikilvægi, og við verðum einfaldlega að gera betur þarna hér eftir.
RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==