KYLFINGUR 2025

I KYLFINGUR I 23 Dagbjartur Sigurbrandsson, GR og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, eru Íslandsmeistarar 2025. Þetta er fyrsti titill Dagbjarts, en sá fjórði hjá Guðrúnu. Mikil spenna var í bæði karla- og kvennaflokki. Úrslitin réðust á lokaholunni hjá körlunum, en leika þurfti umspil til að fá sigurvegara í kvennaflokkinn. Fyrir lokahringinn var Dagbjartur tveimur höggum frá efsta sætinu. Axel Bóasson hafði leikið frábærlega á heimavelli og haldið forystu sinni frá fyrsta degi. Lokahringurinn Dagbjartur setti tóninn strax á fyrstu holu og fékk þar magnaðan örn og var kominn 3 undir eftir 7 holur. Það var því ljóst að mikið einvígi myndi fara fram á Hvaleyrarvelli. Dagbjartur og Axel skiptust á að leiða mótið. Aron Snær Júlíusson blandaði sér einnig í baráttuna með frábærri spilamennsku á fyrri níu holunum. Dagbjartur setti niður gott pútt á 16. og ennþá betra pútt á 17. holunni eftir mjög slakt innáhögg. Þegar á síðustu holuna var komið leiddi Dagbjartur með einu höggi. Bæði hann og Axel áttu góðan séns á fugli, en Axel þó nær. Eftir að Dagbjartur missti pútt sitt fyrir fugli átti Axel möguleika á því að komast í umspil. Púttið geigaði og Dagbjartur Íslandsmeistari karla í golfi 2025. Dagbjartur segist hafa æft mikið og vel á undanförnum mánuðum og árum og stefnir á atvinnumennsku í íþróttinni. Hann ætlar á úrtökumót í haust og draumurinn er að komast á einhverjar af stærstu mótaröðunum. Lokastaðan 1. Dagbjartur Sigurbrandsson, GR 283 högg (67-71-73-72) (-5) 2. Axel Bóasson, GK 284 högg (67-70-72-75) (-4) 3. Aron Snær Júlíusson, GKG 286 högg (72-72-69-73) (-2) 3. Veigar Heiðarsson, GA 286 högg (69-73-74-70) (-2) Frábæru móti var þar með lokið. Óskum öllum keppendum, starfsfólki, sjálfboðaliðum og Golfklúbbnum Keili til hamingju með afrekið – sjáumst aftur að ári! Dagbjartur Sigurbrandsson Íslandsmeistari í golfi 2025 Íslandsmótinu í golfi lauk 10. ágúst á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili

RkJQdWJsaXNoZXIy MzI5Mjk2Nw==